Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 3
3. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 8. október 2008 í Nýheimum klukkan 16:15. Fundur hófst á heimsókn í Sindrabæ og var áfram haldið í Nýheimum.
Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Helga V. Sigjónsdóttir, Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Heimsókn í Sindrabæ
Góð heimsókn í Sindrabæ, starfsemin gengur vel og lofar góðu. Huga þarf að endurnýjun tækja við gerð fjárhagsáætlunar.
- Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir
- Staða fjármála
Björg fer yfir stöðu mála og útskýrir hækkanir/lækkanir.
- Ný safnalög og staða Byggðasafns, ábendingar frá Menningarmiðstöð Hornafjarðar sendar Menntamálaráðuneyti 6.10.2008
Sagt frá nýjum lögum og áhrifum þeirra á starfsemi MMH.
- Aðsóknartölur safna – gögnum dreift á fundinum
Frestað til næsta fundar
- Húsnæði fyrir Listasafn
Hugmyndir ræddar um mögulegt hús. Menningarmálanefnd leggur mikla áherslu á að varanlegt hús verði fundið til næstu ára undir starfsemi Listasafns og verk Svavars Guðnasonar. Forstöðumanni Menningarmiðstöðvar er falið að kanna enn frekar húsnæðið við Hafnarbraut 27 (Gömlu slökkvistöðina) og gera grófa kostnaðaráætlun fyrir næsta fund nefndarinnar.
- Dagskrá félagsmiðstöðvar
Dagskrá, með helstu viðburðum kynnt.
- Opnunartími Bókasafns
Samþykkt að opnunartími Bókasafns sé mánudag-fimmtudaga 9-17, föstudaga 11-17 og laugardaga 10-14.
- Fulltrúar í Listvinasjóði
Gauti Árnason, Helga V. Sigjónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir eru fulltrúar Menningarmálanefndar í Listvinasjóði
- Hátíðarbúningur í eigu sveitarfélagsins
Guðrún fer yfir málið og leggur til að sveitarfélagið fjárfesti í kyrtli og því skrauti sem til þarf. Búningurinn yrði m.a. notaður af Fjallkonunni og við hátíðleg tækifæri auk þess sem hægt væri að fá búninginn leigðan ef óskað væri eftir. Búningurinn yrði í varðveislu Menningarmiðstöðvar. Forstöðumanni falið að kanna kunnáttu heimamanna við vinnu sem þessa og gera áætlun um kostnað.
- WeCan – kynning á umsókn til Markáætlunar
Verkefnið kynnt og sagt frá umsókn til Markáætlunar
- Önnur mál
Björgu falið að fara yfir fundargerðir Menningar- og tómstundanefndar á netinu.
Guðrún lýsir yfir áhyggjum af því að ekkert héraðsblað sé lengur á svæðinu. Eystrahorn var samfélagsspegill og skilur eftir sig tómarúm.
Dagskrá Menningar- og tómstundanefndar Hornafjarðar veturinn 2008-2009 dreift.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 18:22


