Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 2
2. fundur
Fundur haldinn í menningar- og tómstundanefnd miðvikudaginn 10. september 2008 í Nýheimum klukkan 16:00.Mættir: Guðrún Ingimundardóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Helga V. Sigjónsdóttir, Gauti Árnason.
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð lesin upp. Engar athugasemdir gerðar
- Málefni Mánagarðs
Menningarmálanefnd ákveður að funda með hagsmunaaðilum, leikfélögum og félagasamtökum í Nesjum.
- Málverk, sveitarfélaginu boðið að kaupa málverk eftir Hrein Þorvaldsson
Málverkið afþakkað
- Könnun á íþróttaiðkun, tómstundum og félagslífi barna og unglinga á Hornafirði
Könnunin verður gerð með það að markmiði að sjá hversu margir einstaklingar stunda ofangreindar greinar. Könnunin verður framkvæmd fyrir 1. janúar og aldurshópurinn 6-18 ár markhópur. Könnunin yrði framkvæmd aftur í janúar 2010.
- Starfsemi félagsmiðstöðvar unglinga
Starfsemin kynnt og næstu skref.
- Heimsóknir Húsafriðunarnefndar og Safnasjóðs
Björg segir frá heimsókn nefndanna. Heimsóknirnar gengu vel.
- Útgáfa bókar um Svavar Guðnason
Björgu falið að gera samskonar samning við nýjan útgefanda, og gerður var við Nesútgáfuna. Nefndin fagnar því að af útgáfu bókarinnar verði.
- Listasafn
Menningar- og tómstundanefnd fagnar áhuga og velvilja ættingja Svavars Guðnasonar til fæðingastaðar hans og felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar að finna hentugt húsnæði sem hýsa mun sýningu verka Svavars Guðnasonar í nánustu framtíð. Forstöðumanni er einnig falið að gera áætlanir um rekstur sýningarrýmis. Gert er ráð fyrir að salurinn opni árið 2009 á 100 ára ártíð Svavars.
Nefndin fagnar einnig áhuga einstaklinga á uppbyggingu á Listasafni á Hornafirði og leggur til að þeim verði boðið til fundar með forsvarsmönnum sveitarfélgsins.
- Önnur mál
Ungmennaráð – Björg beðin um að athuga í hvaða farvegi ráðið er og undir hvaða nefnd það kemur til með að falla.
Menningarmálanefnd lýsir yfir áhyggjum af stöðu Eystrahorns og bendir á menningarsögulegt gildi fréttablaðsins.
Gauti vitnar í síðustu fundargerð menningarmálanefndar og fer yfir þau atriði sem rædd voru á þeim fundi.
Gauti leggur fram eftirfarandi bóku:
Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar skorar á bæjaryfirvöld að sjá sóma sinn í því að viðhalda minningarreit um Þórhall Daníelsson og Ingibjörgu Friðgeirsdóttur konu hans, sem staðsettur er á Hóteltúninu. Undanfarin ár hefur þessi vinalegi staður fengið að grotna niður og undanfarið hafa verið unnin þar skemmdarverk. Fara þarf strax í þá vinnu að halda þessum reit við svo sómi sé að. Það er sveitarfélaginu til vansa hvernig ástand er þarna núna. Aðrir nefndarmenn eru samþykkir bókuninni.
Gjaldskrá og reglur Bókasafns samþykktar.
Fyrirspurn um kvikmyndasýningar – forstöðumanni og starfsmanni félagsmiðstöðvar falið að athuga stöðu mála, og koma málinu á skrið.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 18:22


