Atvinnu- og menningarmálanefnd
Fundargerð menningar- og tómstundanefndar 1
1. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudaginn 11. júní 2008 í Nýheimum
Einnig: Björg Erlingsdóttir
- Kynning erindisbréfs
Formaður fer yfir erindisbréf Menningar- og tómstundanefndar. Athugasemdir gerðar varðandi skilgreiningu ungmennaráðs og hvort ráðið falli undir nefndina. Ákveðið að fundartími verði annar miðvikudagur í mánuði, kl. 16:15. Björgu falið að safna saman lögum og reglugerðum sem tiltekin eru í erindisbréfi og senda nefndarmönnum.
- Önnur mál
Björg segir frá starfsemi sumarsins.
Lagt til að farið verði í vettvangsferð um húsnæði Menningarmiðstöðvar á næsta fundi.
Fundum nefndarinnar frestað til 13. ágúst.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 16:40


