Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 55
55. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 29. apríl 2009, kl. 16:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Gestur Halldórsson, og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Lokafundur nefndarinnar.
Nefnd um íþróttamannvirki var skipuð í lok árs 2005 og lýkur nú störfum. Eftir þrjú og hálft ár standa tvö glæsileg íþróttamannvirki sem munu efla enn frekar uppbyggingu íþróttagreina og almenna lýðheilsu í Sveitarfélaginu Hornafirði um ókomna tíð. Mannvirkin eru 25 m sundlaug með tilheyrandi aðstöðuhúsi og tartanlagður frjálsíþróttavöllur ásamt enduruppbyggðum knattspyrnuvelli . Rétt er að fara yfir þessar tvær framkvæmdir í stuttu máli áður en nefndin lýkur endanlega störfum. Undirbúningur nýrrar sundlaugar á Höfn hófst að krafti í byrjun árs 2006. Þá fór fram hugmyndavinna í samvinnu við ASK Arkitekta sem eru arkitektar að sundlauginni. Hönnun fór fram sama ár og var í höndum Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Verkið hófs í lok árs 2007 og lauk með opnun sundlaugar á sumardaginn fyrsta 23. apríl 2009. Mannvirkið samanstendur af aðstöðuhúsi, 25 m sundlaug, eimbaði, tveimur heitum pottum, vaðlaug með þremur leiktækjum og þremur veglegum rennibrautum. Öllum lokafrágangur er að mestu leyti lokið. Eingöngu á eftir að setja bundið slitlag á bílastæði og klára endanlegan frágang í kjallara. Uppbygging frjálsíþróttavallar hófst árið 2006 í samvinnu við Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen og uppbyggingu vallarins lauk fyrir Unglingalandsmót í ágúst árið 2007. Völlurinn samanstendur af fjórum tartanlögðum hlaupabrautum auk þess sem tvær viðbótar spretthlaupabrautir eru á suðurhlið, þrjár stökkgryfjur fyrir langstökk og þrístökk, aðstaða fyrir kringlu- og kúluvarp auk tveggja atrennabrauta fyrir spjótkast.
- Að þessu sögðu vill nefnd um íþróttamannvirki nota tækifærið og þakka öllum þeim aðilum sem komið hafa að ofangreindum verkum.
Nefndin lýkur nú störfum og afhendir nýju sundlaugina bæjarráði til reksturs og vonast til að hún verði lyftistöng fyrir samfélagið Hornafjörð, efli þar almennt mannlíf og búsetuskilyrði.
Samþykkt samhljóða
Fundi slitið kl. 16:10


