Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 54
54. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi þriðjudaginn 17. mars 2009, kl. 16:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson ( í síma ), Þórgunnur Torfadóttir, Stefán Ólafsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Haukur Helgi Þorvaldsson, og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Tillaga arkitekt að beðum við sundlaugarbyggingu.
Nefndin tekur vel í tillögu að grjótbeði. Nefndin leggur til að skipt verði út polli í einu horni grjótbeðsins í staðinn fyrir lávaxinn sígrænan gróður svo sem eini, dvergfuru eða bergfuru. Starfsmanni falið að staðfæra útfærslu nánar og leggja fram kostnaðaráætlun áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Ennfremur leggur nefndin áherslu á að miðja bílastæðis verði málað í staðin fyrir steyptan kant.
2. Stólar og borð í afgreiðslu.
Miklar umræður sköpuðust um útfærslu á stólum og borðum. Nefndin telur að þvermál borða geti verið 50 cm og finna þurfi hentuga borðplötu til að tóna við stóla. Arkitekt og starfmanni falið að koma með tillögu að efnisvali á borðplötu sem tónar við stóla. Nefndin bendir á þessi búnaður er utan við útboð og ekki inni í kostnaðaráætlun og beinir þessu til umfjöllunar í bæjarráði.
3. Sjálfsalar í afgreiðslu.
Nefndin telur að það sé óæskilegt að sveitarfélagið standi í samkeppnisrekstri auk þess komu athugasemdir að selt verði gos og sælgæti í lauginni. Málinu vísað til bæjarráðs. ( Þórgunnur vék af fundi eftir þennan lið )
4. Staða mála í sundlaug.
Haukur Ingi gerði grein fyrir framvindu mála í sundlauginni. Verkið er komið á lokastig og verktakar keppast við að klára verkþætti fyrir opnun en stefnt er að opnun 9. apríl. Haukur gerði grein fyrir því að allir verkþættir verði ekki tilbúnir á þeim degi. Það sem ekki verður búið að klára er aðkoma að laugarbyggingu, setbekkir í kvennaklefa, tæki undir sápur og fl. Einnig verður tvísýnt með að laugarkerfi verði tilbúið sem og þökur innan sundlaugarsvæðis.
5. Önnur mál
Haukur Helgi gerði grein fyrir opnunardagsskrá sundlaugar. Ennfremur var starfsmannahald í nýju laugarinnar rætt og myndskreytingar á vesturvegg í afgreiðslu.
Fundi slitið kl. 18:00


