Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 50
50. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 02. september 2008, kl. 17:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Veggur utan á sundlaugarhús, efnisval
Nefndin hallast að ljósum steindum vegg, og óskar eftir prufum í samræmi við umræður á fundinum.
2. Efnisval í girðingu, tillaga arkitekts að setja timburgirðingu upp úr lerki
Nefndin samþykkir tillögu arkitekts og leggur til að timburgirðing verði úr lerki. Nefndin leggur áherslu á að litur á girðingu verði í samræmi við lit á timbri sem er utan á sundlaugarbyggingu.
3. Staða framkvæmda
Haukur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda, verkið gengur ágætlega. Verktakar eru að vinna að uppsetningu vaðlaugar, búnir að setja allar sperrur í bygginguna og eru að fylla í sundlaugarlóð.
4. Önnur mál
Haukur gerði grein fyrir uppsetningu ljósastaura við enda sparkvallar og hugmynd um að strengja net á milli þeirra til að halda boltum innan sparkvallar og frá sundlaugarsvæði.
Nefndin var sammála um að fara í vetfangsferð fyrir næsta fund.
Fundi slitið kl. 18:00


