Nefnd um íþróttamannvirki

Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 49

49. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 16. júlí 2008, kl.  17:00

Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson,  Ragnhildur Einarsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson

 

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1. Tillaga að nýrri útfærslu á hellulögn innan lóðar sundlaugar
Þar sem ákvörðun liggur fyrir um að auka fjölda rennibraut úr einni í þrjár liggur fyrir ný tillaga að hellulögn innan lóðar sundlaugar.  Tillaga lögð fram af Gunnari Borgarssyni Arkitekt.  Tillagan barst í tölvubréfi dagsettu 10.07.2008.  Nefndin samþykkir tillögu arkitekts fyrir sitt leyti.  Áætlaður kostnaðaraukning er 1.347.200 miðað við tilboð frá verktaka 2007.

2.  Girðing meðfram sundlaug 
Haukur gerði grein fyrir því að í upphaflegri kostnaðaráætlun var ekki gert ráð fyrir nauðsynlegum stoðvegg undir girðingu umhverfis lóð sundlaugar.  Þar sem hæðarmismunur er á milli lóða sundlaugar og nærsvæðis.  Áætlaður kostnaður vegna stoðveggs er 10.200.000.-  Nefndin leggur til að stoðveggur nái utan um alla sundlaugarlóðina.  Friðrik spurðist fyrir um hvort undirstöður væru nógu öflugar og væri tryggt að jarðvegur þrýsti ekki um of á stoðvegg og hann fari að halla með tíð og tíma.  Haukur greindi frá samskiptum sýnum við eftirlit og byggingarstjóra og að þeir telji stoðvegg nægjanlega sterkan.  Einnig gerði hann grein fyrir breytingu á legu girðingar meðfram sparkvallar þar sem upphaflega var gert ráð fyrir því að sparkvöllur lægi samsíða íþróttahúsi.

3.  Steinteppi í afgreiðslusal, steinlagðir pottar
Lagðar fram til umræðu myndir af steinlögðum pottum sem verið er að setja potta og gufubað í hótel  Arnarhvoll.  Pottarnir eru lagðir með steinefni frá Ómari á Horni.  Engin reynsla er komin á pottalögnina á Íslandi og því eru tveir menn frá Ameríku að leggja í þessa potta.  Haukur gerði grein fyrir efninu og mismunandi sjónarmiðum við þrif á steinteppum.  Umræður sköpuðust einnig um gólfefni í afgreiðslusal.  Nefndin er sammála um að halda sig við fyrri ákvarðanir varðandi efni í potta og gólfefni í afgreiðslusal.

4.  Staða framkvæmda
Haukur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda, verkið gengur ágætlega, verktakar eru að fara í tveggja vikna frí, þó verða jarðverktakar að vinna að fyllingu innan sundlaugarlóðar.

5. Önnur mál

Friðrik gerði grein fyrir ákvörðun litavals á rennibrautum.  Arkitekt falið að ákveða lit á rennibrautum.

Haukur gerði grein fyrir fráveituframkvæmd innan sundlaugarsvæðis.  Settu verður upp brunnur fyrir framan sundlaugarhús sem ætlað er að hjálpa til þegar mikið álag er á dælubrunni inni í kjallara. 

Friðrik óskaði eftir upplýsingum um hvað væri búið að greiða til hönnuða, arkitekta og verktaka.

Nefndin óskaði eftir kostnaðaráætlun á fullkláruðu gufubaði. 

Haukur gerði grein fyrir samskiptum við tilboðsgjafa í dúkalögn í sundlaug, vaðlaug og jöfnunartank, nú standa yfir samningaviðræður við fyrirtækið Ossa ehf.


Haukur gerði grein fyrir að búið væri að panta rennibrautir og fá staðsetningu undirstaðan fyrir þær.  Beðið er eftir teikningum af undirstöðum og gert ráð fyrir að þær liggi fyrir fljótlega.  Einnig greindi hann frá því að leiktæki í vaðlaug væru á leiðinni til landsins og kæmi e.t.v á Hornafjörð á næstu vikum.



 

Fundi slitið kl. 18:20

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
29.04.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 55
17.03.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 54
17.12.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 53
27.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 52
01.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 51
02.09.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 50
16.07.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 49
27.05.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 48
29.04.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 47
03.03.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 46
20.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 45
07.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 44
15.01.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 43
18.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 42
10.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 41
30.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 40
26.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 39
11.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 38
09.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 37
07.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 36
27.04.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 35
27.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 34
14.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 33
11.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 32
19.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 31
12.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 30
25.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 29
22.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 28
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica