Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 48
48. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi fimmtudaginn 29. apríl 2008, kl. 17:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Þórgunnur Torfadóttir, , Stefán Ólafsson, og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rennibrautir
Haukur greindi frá tilboðum sem bárust í rennibrautir, um er að ræða þrjár rennibrautir. Tvær 5 metra háar rennibrautir sem enda í bremsukeri og eru frekar ætlaðar fyrir eldri aldurshópa og eina braut sem er 2,6 metra há og er ætluð sem alhliða fjölskyldubraut. Nefndarmenn eru sammála um að velja þær brautir sem enda í bremsukeri, valmöguleika tvö. Auk þess lögðu Friðrik Þór Ingvaldsson, Þórgunnur Torfadóttir og Gestur Halldórsson það til að alhliða fjölskyldubrautin verði einnig valin að uppfylltum öryggiskröfum og kröfum um keppnisaðstöðu, valmöguleiki þrjú. Stefán Ólafsson var því ósamála og vill ekki sjá brautina meðfram laugarbakkanum með þessum hætti.
2. Staða framkvæmda.
Haukur gerði grein fyrir stöðu framkvæmda, gerði hann grein fyrir kaupum á búnaði í kjallara og leiktækjum.
3. Önnur mál
Nefndarmenn lögðu áherslu á að settir verði upp ljós með hreyfiskynjurum ásamt öðru vöktunarkerfi.
Fundi slitið kl. 18:15


