Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 46
46. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi fimmtudaginn 3. mars 2008, kl. 16:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Þórgunnur Torfadóttir, , Stefán Ólafsson, Svavar M. Sigurjónsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Vaðlaug
Friðrik greindi frá umræðum milli hönnuða og starfsmanna um breytingu á vaðlaug. Nefndin líst vel á að hönnuðir haldi sig við upphaflegu tillögu um dúkalagða vaðlaug.
2. Skápar í klefa
Greint var frá tillögu arkitekts sem sendar voru í tölvupósti 06.03.2008. Nefndin samþykkir tillögur arkitekts um litaval á skápum. Starfmönnum falið að fá prufu af efnisvali skápa frá verktaka áður en gengið verður frá endanlegri pöntun.
3. Gjöf Skinney Þinganes – kútar í nýja sundlaug
Nefndin þakkar forsvarsmönnum Skinneyjar Þinganess fyrir gjöfina og felur starfsmanni að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins um framhaldið.
4. Staða framkvæmda
Svavar greindi frá stöðu framkvæmda. Spurt var um dúkalagningu laugar og tækjakaup. Fram kom að verktaki er að afla tilboða í dúkalögn. Búið er að kaupa stærstan hluta af tækjum sundlaugar, eftir á að greiða leiktæki, rennibraut og dælur fyrir rennibraut. Bent var á að undirstöðuveggur undir girðingu getur komið að notum sem stoðveggur undir tengibyggingu.
Fundi slitið kl. 17:40


