Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 45
45. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi fimmtudaginn 20. febrúar 2008, kl. 17:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður ( í síma ), Gestur Halldórsson, Þórgunnur Torfadóttir, , Stefán Ólafsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Svavar M. Sigurjónsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Verkfundir – staða mála
Svavar greindi frá stöðu mála sundlaugar, verktakar eru að vinna sig áfram í verkinu og verða tilbúinn að steypa sundlaugar ker í lok næstu viku, verktakinn er búinn að gera klárt fyrir steypu botnplötu í kjallara og bíður eftir rétta veðri til uppsteypu. Nefndin leggur áherslu á að heildarkostnaður vegna fyrirhugaðrar breytingar á útfærslu rennibrautar liggi fyrir áður en afstaða til breytinganna verður tekin.
2. Skápar í klefa
Nefndin leggur til að fjölga tvískiptum skápum úr 14 í 28 á kostnað einfalra skápa, einfaldir skápar verð þá 4, með því fjölgar heildar skápa plássi úr 47 í 60. Nefndin óskaði eftir tillögum að lit á skápa frá arkitekt, nefndin óskar eftir því að tveir litir
3. Snjóbræðsla
Umræður sköpuðust um snjóbræðslu, nefndin beinir því til bæjarráðs að skoðað verði hvort stækka eigi svæði fyrir snjóbræðslu yfir á svæði fyrir framan Heppuskóla og göngustíg milli Hafnarskóla og Heppuskóla.
4. Frágangur á girðingu við íþróttavöll
Nefndin samþykkir breytta staðsetningu á girðingu í kringum íþróttavöll.
Fundi slitið kl. 18:00


