Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 39
39. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi föstudaginn 26. júní 2007, kl. 10:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Gestur Halldórsson, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Bjarni Ólafur Stefánsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Sundlaug
Miklar umræður sköpuðust um næstu skref í sundlaugarmálum. Ákveðið var að framkvæma verðkönnun á uppsteypu. Ákveðið var brjóta aðra verkþætti upp og ganga til samninga við verktaka um aðra þætti.
- Mjúkhús
Friðrik Þór kynnti mjúkhús. Mjúkhúsið fékk jákvæðar undirtektir. Starfmanni var falið að kanna hvort grundvöllur sé fyrir Mjúkhús á Íslandi m.t.t rekstrarkostnaðar, reglugerða og fleira.
- Frágangur á Sindravöllum
Nefndin lagði áherslu á að frágangur utan við Sindravelli verði með sem snyrtilegustum hætti, starfmönnum var falið að loka aðgengi að vellinum. Nefndin lagði áherslu á að heildstæð lausn verði fundin á umhirðu íþróttamannvirkja á Hornafirði.
Fundi slitið kl. 12:30


