Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 38
38. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi föstudaginn 11. maí 2007, kl. 13:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Halldóra B. Jónsdóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Tilboð í sundlaug við Heppuskóla
Tekið var fyrir tilboð G. Þorsteinssonar ehf. sem var eini tilbjóðandi í verkið. Nefndin var því sammála að hafna tilboði G. Þorsteinssonar ehf. Jafnframt samþykkti nefndin að gengið verði til samninga við tilbjóðanda með það í huga að hann taki verkið að sér fyrir aðra og lægri upphæð en boðin var af hans hálfu.
2. Önnur mál
· Halldóra tilkynnti að hún hygðist hætta störfum í nefnd um íþróttamannvirki. Þetta verði því hennar síðasti fundur. Halldóra, nefndarmenn og starfsmenn þökkuðu fyrir gott samstarf.
· Ragnhildur spurði hver ætti að sjá um að vökva nýja völlinn eftir að grasið er komið á hann. Spunnust um það nokkrar umræður án endanlegrar niðurstöðu en áhersla lögð á að vökvun þurfi að vera í lagi.
· Rætt var um vallarstjórn (vallarstjóra) og nauðsyn þess að koma því máli í viðunandi horf.
Fundi slitið kl. 13:45


