Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 34
34. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 27. mars 2007, kl. 16:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Halldóra B. Jónsdóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Útboðsgögn vegna sundlaugarmannvirkja yfirfarin
Útboðsgögnin rædd og farið yfir athugasemdir sem fram hafa komið eftir yfirlestur nefndarmanna. Athugasemdir sendar til VST í tölvupósti. Rætt um hvernig meðhöndla eigi tilboð í verkið og hvaða reglur menn setji sér við að taka tilboðum.
2. Erindisbréf fyrir verkefnastjóra
Farið var yfir drög að erindisbréfi, dagsett 20. mars 2007. Drögin voru samþykkt samhljóða. Jafnframt samþykkt að auglýsa eftir verkefnastjóra í staðarmiðlum.
3.Verkefnastaða við íþróttavöll
Þessa dagana er unnið að því að koma fyrir frárennslislögnum og er góður gangur í því verki. Svavar kemur austur á morgun ásamt mælingamanni til að setja út staðsetningu rennu- og kantsteina.
4. Önnur mál
Rætt um steinsalla, sem talað er um af verktaka við hlaupabrautir, til að blanda í undirlag hlaupabrautar. Óskað eftir upplýsingum frá Pétri W. Jessen um stöðu þess máls.
Fundi slitið kl. 17: 30


