Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 30
30. fundur
Fundur haldinn í fundarsal ráðhúss, mánudaginn 12. febrúar 2007, kl. 20:00
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson og Svavar Sigurjónsson (í síma).
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Hreinsikerfi - upplýsingar frá verk- og tæknifræðingum
Svavar greindi frá því að því miður hafi ekki orðið af fundi með VST um hreinsikerfi vegna veikinda þar á bæ. Sagði hann að honum og Jóni Guðmundssyni verkfræðingi lítist ágætlega á bandarískt sundlaugarhreinsikerfið frá Metatron. Enn væri þó ekki komin afstaða hjá hönnuðum VST og því ekki hægt að úttala sig um málið að fullu. Friðrik greindi frá samtali við Flosa hjá VST og hans hugmyndum um kjallara og hreinsikerfi. Nefndin sammála um að bíða eftir fundi starfsmanna VST og starfsmanna Verkfræðiþjónustunnar áður en tekin verður ákvörðun um framhaldið.
2. Þökur á íþróttavöll
Stefán greindi frá óformlegu tilboði frá Bjarna Hákonarsyni, Gróðrarstöðinni Dilksnesi, í þökur og þökulagningu á íþróttavöll. Einnig greindi hann frá hugmyndum Bjarna um ýmsan frágang á undirlagi undir þökur. Einnig rætt um grófleika á því efni sem fer í púðann á íþróttavöllinn.
3. Staða framkvæmda
Fram kom að gögnin vegna jarðvegsskipta undir sundlaugarmannvirki eru tilbúin. Sá gröftur sé hins vegar háður því að 4500 m3 af fargi verði farnir, efni sem nota á í íþróttavöll. Nefndarmenn sammála því að framkvæmdin sé orðin svo aðþrengd að tíma að leggja verði ofurkapp á að nýta hverja stund til að koma verkinu áfram.
4. Önnur mál
- Rætt um girðingar utan um athafnasvæði. Spurning hvort leigja eigi girðingar eða kaupa. Samþykkt að keypt verði girðing enda sýni útreikningar að sé það hagstæðara en að leigja.
- Greint frá tilboði í gerviefni á íþróttavöll sem barst eftir að útboðsfrestur var út runninn.
- Halldóra velti upp þeirri hugmynd hvort ekki væri rétt að ráða sérstakan verkefnisstjóra sem hefði yfirumsjón með framkvæmdunum, sbr. 6. lið í erindisbréfi nefndarinnar. Spurt var á móti hvort ekki væri verið að kaupa slíka ráðgjöf af Verkfræðiþjónustunni.
Fundi slitið kl. 21:40


