Nefnd um íþróttamannvirki

Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 33

33. fundur

Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 14. mars 2007,  kl.  16:00

Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir varaformaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Stefán Ólafsson, Svavar M. Sigurjónsson, Pétur W. Jessen, Guðmundur Þ. Jónsson.

 

 

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1. Vinna við íþróttavöll

Guðmundur, Svavar og Pétur greindu frá stöðu mála og ýmsum atriðum sem tengjast vinnu við íþróttavöllinn. Staða mála er sú að framkvæmdir eru komnar vel af stað og lítur vel út með framhaldið. Guðmundur (Túnþökuvinnslan) stefnir að því að koma í byrjun maí eða um leið og sandlagið á völlinn er komið í útlagningu. Þannig gæti hann komið fyrr en núverandi áætlun gerið ráð fyrir ef verkstaða gefur tilefni til þess. Pétur greindi frá því að verktaki við gerviefni óskaði eftir því að blanda steinsalla við undirlagið sem er gúmmí. Ekki var gert ráð fyrir þessu í tilboði verktakans. Nefndin sammála því að Pétur fari yfir þessi mál og ræði við verktakann. Einnig rætt um girðingu utan um völlinn og hvað gera eigi í þeim málum.

 

2. Útboð vegna jarðvegsvinnu við sundlaugarmannvirki

Greint frá opnun tilboða í jarðvegsskipti sem fram fór kl. 14:00 í dag. Þrjú tilboð bárust: Ólafur Halldórsson bauð í verkið kr. 8.250.000.-, Jarðverk Hornafirði bauð í verkið 11.000.000.- og Rósaberg ehf. bauð í verkið kr. 7.120.000.- Nefndin mælir með að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Rósaberg.  

Rætt um hvað gera eigi við fargefni sem nú er á sundlaugarsvæði og einnig hvernig verkið verður unnið.

Einnig farið yfir tímasetningar á útboðsgögnum. Svavar sagði að fram hafi komið að þau ættu að verða tilbúin um 20. mars. Komu fram hjá nefndarmönnum vonbrigði með þann drátt sem orðið hefur á afhendingu útboðsgagna vegna sundlaugarmannvirkja.

 

3. Önnur mál
Rætt um  möl á bílastæði við íþróttavöll og undirlag undir stóra tjaldið (1200 m2, UMFÍ).  Rætt um erindisbréf fyrir verkefnastjóra.



Fundi slitið kl. 17:15

 

 

 

 


Fundargerðir

Dag.grein
29.04.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 55
17.03.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 54
17.12.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 53
27.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 52
01.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 51
02.09.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 50
16.07.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 49
27.05.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 48
29.04.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 47
03.03.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 46
20.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 45
07.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 44
15.01.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 43
18.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 42
10.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 41
30.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 40
26.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 39
11.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 38
09.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 37
07.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 36
27.04.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 35
27.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 34
14.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 33
11.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 32
19.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 31
12.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 30
25.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 29
22.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 28
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica