Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 32
32. fundur
Fundur haldinn á skrifstofu Hauks Inga í ráðhúsi fimmtudaginn 1. mars 2007, kl. 15:00
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson og Kristján Þór Hálfdánarson (í síma).
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Hreinsibúnaður í sundlaug (bréf VST)
(Kristján hjá VST var í síma undir þessum lið)
Nefndin er sammála um að tækjabúnaður verði boðinn út sér í samræmi við tillögur hönnuða hjá VST dagsettar 20.02.2007. Jafnframt er nefndin því sammála að breyta ekki hönnun hússins (lagnakjallara) frá fyrirliggjandi teikningum.
2. Útboðsgögn vegna jarðvegsvinnu við sundlaug og sundlaugarmannvirki.
Nefndin samþykkir að útboðsgögn vegna jarðvegsvinnu við sundlaug verði tilbúið 6. mars og útboð auglýst strax í framhaldi af því.
Nefndin samþykkir að lokið verði við gerð útboðsgagna vegna sundlaugarmannvirkja eigi síðar en í 8. mars.
3. Staða framkvæmda
Friðrik Ingvalsdsson og Haukur kynnti stöðu mála.
4. Verkefnastjóri / verkefnastjórn vegna framkvæmdanna
Ákveðið að leggja til að verkefnastjóri verði ráðinn frá 15. apríl – 31. ágúst. Starfsmönnum var falið að útbúa erindisbréf og bera undir nefndina á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 16:30


