Nefnd um íþróttamannvirki
Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 29
29. fundur
Fundur haldinn í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 25. janúar 2007, kl. 17:10.
Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir, Stefán Ólafsson og Svavar Sigurjónsson (í síma).
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Jarðvegsskipti á íþróttavelli (Svavar í síma)
Rætt um hvenær hægt verður að fara í þessi jarðvegsskipti. Meðal annars rætt um hvaða áhrif klaki í jörðu hefur á jarðvegsskiptin. Skiptar skoðanir eru meðal tæknimanna um hvort setja megi malarpúða ofan á frosna jörð, þ.e. þegar búið er að skafa í burt gróðurlagið. Fram kom að eigi að grafa niður fyrir frost, eins og það er nú, kostaði um 3,5 milljónir til viðbótar við núverandi kostnað á öllum vellinum.
Samþykkt að Svavar reiknaði út kostnað við að grafa niður fyrir frost og jarðvegsskipta undir hlaupabrautum.
Farið yfir tilboð frá Túnþökuvinnslunni ehf. í þökur, þökulögn og frágang þeirra. Nefndarmenn sammála um að kanna hvort finna megi aðrar túnþökur sem hentað gætu íþróttavellinum jafn vel eða jafnvel betur en sérhannað knattspyrnugras. Nefndarmenn sammála um að á meðan sú athugun stendur yfir verði ekki gefið upp verð tilboðsgjafa.
2. Útboð á jarðvegsskiptum undir sundlaugarmannvirki (Svavar í síma)
Undir þessum lið gerði Svavar grein fyrir nýjum bandarískum hreinsi- og lagnakerfum. Er um að ræða kerfi sem er verulega frábrugðið þeim kerfum sem eru í notkun í dag. Fram kom að um sé ræða ódýrari kerfi sem einnig séu ódýrari í rekstri. Samþykkt að Svavar fari yfir þessi mál með verkfræðingum hjá VST.
Nefndin samþykkir að vinna við útboðsgögn vegna grundunar sundlaugar verði sett í gang og verkið boðið út á sambærilegan hátt og viðhaft var við útboð á jarðverksskiptum íþróttavallar, þ.e. að verktökum innan sveitarfélagsins verði boðið að bjóða í verkið. Nefndin leggur áherslu á að vinnu við útboðsgögnin verði hraðað svo bjóða megi verkið út sem fyrst.
3. Útboðsgögn vegna sundlaugarmannvirkja
Þessum lið frestað um sinn vegna nýrra upplýsinga um hreinsikerfi sundlaugar.
4. Heitir pottar
Eftirfarandi kom í tölvupósti þann 25. jan. 2007 frá Flosa Sigurðssyni, verkfræðingi hjá VST:
„Ég hef tekið saman kostnaðarmismun á milli þess að setja upp trefjaplastpottinn úr gömlu lauginni eða steypa pott skv. teikningum Gunnars.
Niðurstaðan er að viðbótarkostnaður er milli 1.500 og 1.600 þúsund.
Þennan mismun hef ég fundið með því að taka saman alla liði vegna uppsteypu og frágangs (flísalögn, málun, rennuristar, handrið, niðurföll o.fl.) steypts potts og kostnaðar sem við áætluðum vegna uppsetningar á plastpottinum ásamt lagnateningum.
Þessi tala á að gefa fullnægjandi vísbendingu um þennan kostnaðarmismun. Einnig má líta á þessa tölu sem þann sparnað sem fengist með því að nota gamla pottinn.”
Miðað við ofangreindar kostnaðartölur samþykkir nefndin að byggðir verði tveir steyptir pottar samkv. fyrirliggjandi teikningum arkitekts.
5. Upplýsingar frá Guðrún Ingólfsdóttir, frjálsíþróttakonu
Guðrún kom inn á fundinn undir þessum lið og fór ásamt nefndinni yfir teikningar af frjálsíþróttavellinum, dags. 22.12. 2006. Guðrún setti spurningu við staðsetningu stangarstökksaðstöðu, hvort ekki væri betra að setja hana á miðgryfju fyrir langstökk eða endagryfjurnar sem væri jafnvel betri kostur. Önnur atriði sem Guðrún benti á að fara mætti betur voru staðsetning kringlukasthringja, frágangur við stökkgryfjur, atriði sem snúa að tímatökubúnaði og sagði að búr utan um kringlukasthringi væru nauðsynleg og lagði áherslu á mikilvægi þess að girða völlinn vel.
6. Önnur mál
- Lesinn upp tölvupóstur frá Flosa Sigurðssyni vegna athugasemda nefndarinnar við upplýsingar frá starfsmönnum VST.
- Greint frá samtölum við Helga Má þar sem ræddur var kostnaður við grundun sundlaugarmannvirkja.
- Friðrik greindi frá samtali við Jón Kjartansson út af frekari dýptarmælingum (holum) við sundlaug. Borinn er sem stendur í verki vestur á Síðu og óljóst hver bæri kostnað af því að flytja borinn austur. Nefndarmenn sammála um sjá til hvort borinn komist fljótlega á staðinn og taka þá ákvörðun um framhaldið (í tölvupósti).
Fundi slitið kl. 19:05


