Nefnd um íþróttamannvirki

Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 28

28. fundur

Fundur haldinn í fundarsal ráðhúss, mánudaginn 22. janúar 2007,  kl.  12:00.

Mætt voru: Friðrik Ingvaldsson formaður, Þórgunnur Torfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Stefán Ólafsson.

Einnig:  Hjalti Þór Vignisson og Svavar Sigurjónsson og Pétur Jessen í síma undir 3. dagskrárlið.

.

 

 

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1. Starfsmaður nefndarinnar

Friðrik spurði hvort athugasemd væri gerð við það að Stefán haldi utan um fundi uns kominn verði nýr starfsmaður á tækni- og umhverfissvið. Var ekki gerð við það athugasemd af nefndamönnum.

 

2. Jarðvegsskipti á íþróttavelli.

Einnig rætt um leyfi frá yfirdýralækni til að flytja gras (torf) á milli svæða. Pétri Jessen (VST) hefur verið falið að útvega það leyfi.

 

3. Tilboð í efni á hlaupabrautir og kastsvæði.

Tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum:

 

No.1

P. Ólafsson / Herculan

Offer no.1 =     EL 35mm SBR (excl. stonemix) + Herculan SR Sprint, 16mm (IAAF)

                        Total offer,incl. accessories                                                       = 27.246.659 ikr

Offer no.2 =     EL 35mm SBR (excl stonemix) + Herculan SR Sprint, 13 mm (IAAF)

                        Total offer,incl. accessories                                                       = 26.469.569 ikr

 

No.2

Sport Tæki ehf / Mondo / APT Spor + zn BV

Offer no. 1 =    Mondo fine Tune prefabric. Substructure + Mondo Sporttrack 13mm (IAAF)

                        Total offer,incl. accessories, 309.783 EUR x 92,05                   = 28.515.525 ikr

Offer no. 2 =    90mm reinforced concrete slab + Mondo Sporttrack 13mm (IAAF)

Total offer,incl. accessories, 356.245 EUR x 92,05                   = 32.792.352 ikr

Offer no. 3 =    Subbase mix. (SBR rubber + chrushed stones) + APT Spor-SDR + EPDM

Total offer,incl. accessories, 388.505 EUR x 92,05                   = 35.761.885 ikr

 

No.3

Polytan Gmbh DK

Offer no. 1 =    EL 35-40mm SBR (excl stonemix) + Polytan M 13mm (IAAF)

                        Total offer,incl. accessories                                                       = 23.671.300 ikr

 

No.4

Á Óskarsson / Virklund Sport DK/ BOLIDT

Offer no. 1 =    ET hard 35-40mm crused stones + PUR binder. Conipur SW 13mm (IAAF)

Total offer,incl. accessories, 452.051 EUR x 92,05                  = 41.611.294 ikr

 

Fram kom hjá Pétri að gengi krónunnar eigi ekki að hafa áhrif á verðið frá Polytan Gmbh Dk þannig að það muni standa óbreytt þrátt fyrir að gengið kunni að breytast. Pétur mælir með því að tilboði frá Polytan verði tekið.

Nefndin samþykkir samhljóða að taka tilboði frá Polytan Gmbh DK að upphæð kr. 23.671.300.

 

4. Grundun sundlaugarmannvirkja

Eftirfarandi er tölvupóstur, sem varðar grundun sundlaugarmannvirkja, frá Flosa Sigurðssyni, verkfræðingi hjá VST:

?Sæll Hjalti

Meðfylgjandi eru niðurstöður útreikninga okkar vegna mats á hvort heppilegra sé að jarðvegsskipta undir sundlaugarmannvirkjunum eða reka niður staura.

 

Niðurstöður okkar útreikninga eru þær að viðbótarkostnaður vegna jarðvegsskipta fram yfir það að geta grundað mannvirkin eins áætlanir miðuðust við (þegar jarðvegsundirstaða yrði komin í jafnvægi) er tæpar 11 millj kr.

Miðað við þessa niðurstöðu hef ég ákveðið að kanna ekki frekar kostnað vegna grundunar með staurarekstri þar sem lauslegar bráðbirgðaniðurstöður gáfu til kynna kostnað milli 12-15 millj kr.  Miðað við kostina sem við fáum við jarðvegsskipti fram yfir staurarekstur þá tel ég óþarfa að skoða þann möguleika frekar.

 

Miðað við að sveitarfélagið hefur ekki tíma til að bíða í óvissan tíma (jafnvel einhver ár m.v. þá hegðun jarðvegs sem mælingar hafa sýnt) þá teljum við skynsamlegast að ráðist verði í jarðvegsskipti vegna framkvæmdanna.

 

Við Jón ræddum aðeins saman í morgun um sjónarmið hvort skynsamlegra geti verið að bjóða jarðvegsskiptin sér út og heildarframkvæmdina sér. Við töldum báðir það vel geta komið til greina að bjóða jarðvegsskiptin út sér þ.a. þeim ljúki með því að fyllt verði upp í tiltekinn kóta sem nýr verktaki kemur til með a grunda mannvirkið á. Að vísu verður jarðvinna þá eftir í þeim pakka eðli málsins samkvæmt til að sá verktaki hafi fulla yfirstjórn. ábyrgð og stjórnun á þeim verkþætti vegna heildarverksins.

 

Ég taldi rétt að koma þessari niðurstöðu til þín strax en við getum svo unnið að frekari tillögum um hvernig hægt sé að standa að útboði eða útboðum.

 

Það er spurning hvort þið hafið ákveðnar hugmyndir í því sambandi áður en lengra verður haldið.

 

Mbkv

Flosi Sigurðsson?

 

Mikil umræða skapaðist um grundunarmálin. Bent var á að mjög langan tíma hafi tekið að fá tillögur um grundun frá VST og upplýsingar á margan hátt verið misvísandi, svo sem kostnaðartölur við að grunda mannvirkið á staurum. Voru nefndarmenn almennt ósáttir við upplýsingar frá VST, einkum atriðum sem snúa að grundun mannvirkisins. Nefndin samþykkir að kanna það að teknar verði a.m.k.tvær holur til viðbótar til að kanna dýpið niður á fast. Starfsmanni Verkfræðiþjónustunnar í samráði við formann nefndarinnar falið að sjá um það verk.   

Nefndin samþykkir að sundlaugarmannvirki verði grunduð þannig að grafið verði niður á fast og skipt um allan lausan jarðveg undir mannvirkjunum.

 

Rætt um hvaða aðferð verði beitt í sambandi við útboð á jarðvegsskiptum. Hvort jarðvegsskipti verði boðin út sér eða sem hluti af heildarboði. Samþykkt samhljóða að bjóða jarðvegsskipti út sér.

 

5. Næsti fundur ákveðinn fimmtudaginn 25. janúar kl 17:00.

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
29.04.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 55
17.03.2009 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 54
17.12.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 53
27.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 52
01.10.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 51
02.09.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 50
16.07.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 49
27.05.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 48
29.04.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 47
03.03.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 46
20.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 45
07.02.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 44
15.01.2008 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 43
18.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 42
10.09.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 41
30.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 40
26.06.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 39
11.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 38
09.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 37
07.05.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 36
27.04.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 35
27.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 34
14.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 33
11.03.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 32
19.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 31
12.02.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 30
25.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 29
22.01.2007 Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 28
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica