Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 28
28. fundur
28. fundur Stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
haldinn í heilsugæslustöð, 18. desember 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Guðmundur Heiðar Gunnarsson varaformaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Fundargerð ritaði: Matthildur Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Dagskrá:
|
1211014F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 27 |
||
|
Engar athugasemdir |
||
|
|
||
|
2. |
201212036 - Rektrarstaða HSSA 30.nóvember 2012 |
|
|
Rekstur HSSA er nokkurn veginn á áætlun. Tekjur frá ríkinu skila sér hægt inn og er undir áætlun. Stefnir allt í hallarekstur um áramót. |
||
|
|
||
|
3. |
201212032 - Umboð og yfirdráttarheimild HSSA |
|
|
Framkvæmdastjóri upplýsti að HSSA er með 10 millj. króna yfirdráttarheimild í Landsbanka Íslands og er óskað eftir því að stjórn HSSA veiti fjármálastjóra sveitarfélagsins heimild til að fá áframhaldandi yfirdráttarheimild hjá Landsbankanum. Einnig voru lögð fyrir stjórnina á 27.fundi til undirskriftar prófkúruheimildir á bankareikninga stofnunarinnar en láðist hafði verið að bóka þá framkvæmd og er gert hér með. |
||
|
|
||
|
4. |
200712021 - Þjónustusamningur um rekstur HSSA |
|
|
Fengist hefur munnleg heimild um að samið verði um 24 hjúkrunarrými í nýjum þjónustusamning frá aðstoðarmanni ráðherra, Önnu Sigrúnu Baldursdóttur. Enn hefur ekki fengist skriflega staðfesting frá Velferðarráðuneytinu |
||
|
|
||
|
5. |
201212003 - Bygging á nýju hjúkrunarheimili HSSA |
|
|
Matthildur hafði samband við Velferðarráðuneytið vegna byggingarmála. Rætt við fulltrúa framkvæmdasjóðs aldraðra. Það er alveg ljóst að HSSA þarf að tryggja fjármögnun áður en sótt er um í framkvæmdasjóðinn. HSSA er ekki á byggingaráætlun hjúkrunarheimila hjá ríkinu í dag. |
||
|
|
||
|
6. |
201211069 - Stefnumótun HSSA |
|
|
Farið yfir stefnumótunarskjal og aðgerðaráætlun. |
||
|
|
||


