Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 26
26. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 23. október 2012
kl. 16:20.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Ásgerður Gylfadóttir, Elín Freyja Hauksdóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerðritaði: Matthildur Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri
1. Fundargerð 24 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 30. september 2012
Rekstrarstaðan er í jafnvægi en það er óvissa um lokaniðurstöðu þ.e. hvort HSSA fær að fullu greitt fyrir 26 hjúkrunarrými skv. Þjónustusamningi, eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Ef HSSA fær ekki greitt fyrir 26 hjúkrunarrými stefnir í allt að 30. millj.kr. halla á árinu. Fyrirspurn um bréf sem samþykkt var hjá bæjarráði að senda til velferðaráðherra í samráði við stjórn HSSA. Upplýst var að bæjarstjóri frestaði sendingu bréfsins og er að ræða við þingmenn kjördæmisins.
3. Starfsmannamál
Matthildur Ásmundardóttir sjúkraþjálfari hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri við HSSA frá og með 1. nóvember. Guðrún Júlía lætur af störfum 1. nóvember næstkomandi. Festa er í læknamálum fram á vor.
4. Bygging á nýju hjúkrunarheimili, Ekran og íbúðir aldraðra
Fyrirhuguð heimsókn og fundur með THG arkitektum er 5.nóvember út af byggingu á nýju hjúkrunarheimili.
5. Önnur mál
a) Ásgeir Gunnarsson lagði til að nefndin kynnti sig fyrir Elínu Freyju.
b) Guðrún Ingimundardóttir hefur skoðað heimasíður heilbrigðisstofnana og leggur áherslu á að setja gjaldskrá fyrir þjónustu veitta á heilsugæslustöðinni líkt og er víða annars staðar. Ásgerður Gylfadóttir bendir á hvar þessar upplýsingar er að finna á síðunni, einnig segir hún frá því að hún er að fara á námskeið er varðar heimasíðugerð heilbrigðisstofnana.
c) Ásgeir kynnir vinnu að stefnumótun. Stefnt er að aukafundi stjórnar HSSA eftir 2 vikur, í viku 45.
Fundi slitið kl: 17:00


