Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 24
24. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 25. september 2012
kl. 16:20.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerðritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
1. Fundargerð 23 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 31. ágúst 2012
Rekstrarstaðan er í jafnvægi en það er óvissa um lokaniðurstöðu þ.e. hvort HSSA fær að fullu greitt fyrir 26 hjúkrunarrými skv. Þjónustusamningi, eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Ef HSSA fær ekki greitt fyrir 26 hjúkrunarrými stefnir í allt að 30. millj.kr. halla á árinu. Framkvæmdastjóri fór yfir fjárframlög til HSSA í fyrsta frumvarpi til fjárlaga 2013. Þar kom m.a. fram hve mikill munur er á fjárframlagi til hjúkrunarrýma heilbrigðisstofnana eða frá 8,8 til 12,1 millj.kr. pr. hjúkrunarrými á ári.
Þegar tölur fyrir heilbrigðistofnanirnar á Blönduósi og Fjallabyggð eru bornar saman við HSSA, kemur fram, að HSSA er ætlað 10% lægra fjárframlag til reksturs heilsugæslu, sjúkra- og hjúkrunarrýma að frádregnum sértekjum, á þessum stöðum er veitt sambærileg þjónusta. Stjórn HSSA óskar eftir að aflað verði upplýsinga um reiknilíkan Velferðarráðuneytisins að baki þessara talna.
3. Starfsmannamál
Fjórar umsóknir eru um stöðu framkvæmdastjóra. Umsækjendur eru Hanna Lára Steinsson, Matthildur Ásmundardóttir, Kristian Emil Frederiksen og Gunnar Örn Reynisson. Viðtöl við umsækjendur eru í gangi hjá ráðningarfyrirtækinu, Hagvangi.
4. Drög að heilbrigðisáætlun Velferðarráðuneytis til 2020 lögð fram til kynningar
Ester fór yfir helstu atriði í drögum að heilbrigðisáætlun Velferðarráðuneytis til 2020 og kom fram að verkefnum tengdum heilsugæslunni mun fjölga mjög mikið. Mikil áhersla er lögð á félagslega áhrifaþætti heilbrigðis, forvarnir og sameiginlega sjúkraskrá fyrir landið.
5. Bygging á nýju hjúkrunarheimili, Ekran og íbúðir aldraðra
Farið yfir drög að minnisblaði um fyrirhugaða heimsókn Búmanna til Hornafjarðar. Framkvæmdastjóra falið að fylgja þessu eftir.
6. Önnur mál
a) Stefnumótun HSSA, nefndin sem skipuð var á síðasta stjórnarfundi, þurfti af óviðráðanlegum orsökum að fresta vinnu sinni. Verkefni nefndarinnar er að koma með tillögu um endanlega framsetningu og kynningu á stefnumótun HSSA.
b) Næsti fundur verður 30. október .
Fundi slitið kl: 17.35


