Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 22
22. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 12.júní 2012
kl. 16:30.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Ester Þorvaldsdóttir.
Fundargerðritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
1. Fundargerð 21 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 30. apríl 2012
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna.
3. Stefnumótun HSSA
Unnið að drögum að stefnumótun upp úr gögnum frá ráðgjöfum Skyggnis ehf. Stefnumótunarvinnan er langt komin og lýkur í haust.
4. Starfsmannamál
Ýmislegt rætt.
5. Önnur mál
a) Stjórn HSSA lýsir yfir óánægju með breytta flugáætlun flugfélagsins Ernis. Sú breyting þrengir möguleika þeirra sem þurfa að sækja læknisþjónustu til Reykjavíkur, við að komast að heiman og heim sama dag.
b) Næsti fundur verður 28. ágúst.
Fundi slitið kl: 18.00


