Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 46
46. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 26. október 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Kristín G. Gestsdóttir og Maren Sveinbjörnsdóttir. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ingibjörg Ingólfsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fjárhagsáætlun 2004
Jóhann fór yfir fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2004 sem nú var lögð fram á nýju formi. Samþykkt var að leggja 1,5 milljón í úttekt á skipuriti og rekstri stofnunarinnar.
Niðurstaðan er að miðað við óbreytt framlög ríkisins verður halli stofnunarinnar rúmar 20 milljónir kr.
Heilbrigðis- og öldrunarráð felur framkvæmdaráði HSSA að fara yfir drögin m.t.t. þess hvar hægt er að ná fram hagræðingu.
Framkvæmdastjóra er falið að kanna forsendur þess að framlög til heilbrigðisstofnana hækka víðast mun meira milli ára en framlög til HSSA.
2. Félagsleg heimaþjónusta HSSA – reglur og gjaldskrá
Farið var yfir drög að reglum um heimaþjónustu og gjaldskrá. Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar sem haldinn verður 9. desember nk..
3. Önnur mál
Engin.
fundi slitið kl. 18:45


