Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Stjórnar HSSA 21
21. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 22. maí 2012 kl. 16:20.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ólöf Óladóttir og Hjalti Þór Vignisson.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
1. Fundargerð 20 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Þjónustusamningur við Velferðarráðuneytið, staða mála
Með fundarboði voru einnig send út drög að samningi frá Sjúkratryggingum Íslands dags. 3. maí 2012, um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar og drög að bréfi til Velferðarráðherra frá bæjarráði og stjórn HSSA. Stjórn HSSA samþykkir drögin að bréfinu til Velferðarráðherra. Hjalti fór yfir málið og kom fram að samningsdrögin frá Sjúkratryggingum Íslands eru ekki ásættanleg, vegna ágreinings um kostnaðarmat. Hjalti vék af fundi kl 16:40.
3. Ársskýrsla HSSA 2011
Framkvæmdastjóri fór yfir ársskýrsluna. Stjórn HSSA hefur engar athugasemdir og samþykkir ársskýrsluna.
4. Öryggisstefna HSSA í upplýsingatækni
Framkvæmdastjóri kynnti öryggisstefnu HSSA í upplýsingatækni, sem samþykkt var í framkvæmdaráði 15. maí sl. Öryggisstefnan var unnin af Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur, Gunnhildi Imsland og Sveinbirni Imsland. Stuðs var við öryggisstefnu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, með þeirra samþykki. Stjórn HSSA gerir engar athugasemdir og samþykkir stefnuna.
5. Stefnumótun HSSA
Vinnulota í stefnumótun var 15 maí. Þá var framtíðarsýnin fullmótuð og skipurit HSSA endurskoðað. Einnig farið yfir verkefnalista sem varð til eftir SVÓT greiningu á HSSA. Lokaskil ráðgjafanna til stjórnar og framkvæmdaráðs verður í byrjun júní. Stjórnin er mjög ánægð með þá vinnu sem hefur verið unnin í vinnulotunum.
6. Starfshópur um byggingu nýs hjúkrunarheimils
Farið yfir erindisbréf vegna undirbúnings framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili. Stjórn HSSA leggur til að starfshópurinn fundi með bæjarstjórn 12. júní kl:16.00 í ráðhúsi.
7. Starfsmannamál
Langt komið að ráða inn í sumarafleysingar.
8. Önnur mál
a. Formaður leggur til að næsti stjórnarfundur verði 12. júní kl:16.30.
Fundi slitið kl: 17.20


