Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 18
18. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 28. febrúar 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir
1. Fundargerð 17 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Stefnumótun HSSA
Bréf frá R3 ráðgjöfum til stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands dags. 24. febrúar 2012.
..“Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Ásgeir Gunnarsson formaður
Víkurbraut 26-31
780 Hornafirði
Undirritaðir, fyrir hönd R3-Ráðgjafar ehf, harma bókun sem stjórn HSSA gerði á fundi sínum 24. janúar 2012 og ákvörðun hennar um slit á samstarfi við fyrirtækið um vinnu við stefnumótun fyrir stofnunina. Ákvörðun stjórnarinnar er tekin á lokastigi vinnunnar en við höfum unnið af fullum heilindum að verkefninu samkvæmt samningi þar um frá 28. mars 2011. Meðfylgjandi gögn staðfesta það.
Meðfylgjandi eru eftirfarandi gögn um verklag og framvindu verkefnisins:
• Samningur um verkefnið dags. 28. mars 2011.
• Mánaðarlegar framvinduskýrslur um vinnu við verkefnið.
• Minnisblað til formanns stjórnar HSSA 6. ágúst 2011.
• Yfirlit um ferli og samskipti aðila frá 6. október 2011.
Einnig eru drög að stefnumótun HSSA 2012-2020 lögð fram eins og þau voru send ykkur þann 3. janúar sl. til yfirlestrar, ásamt fylgiskjölum:
1. Stefnumótun HSSA: Stefna.
2. Stefnumótun HSSA: Forsaga/Starfsemi/Forsendur.
3. Stefnumótun HSSA: Greiningar.
Fylgiskjöl:
• Greinargerð um kynnisferð stjórnar HSSA um Suður- og Vesturland.
• Samanburður á fjármögnunarkostum vegna byggingar hjúkrunarheimilis.
• Samanburður á rekstri þriggja heilbrigðisstofnana.
• Þjónustukönnun á heilsugæslustöð HSSA 2011 og samanburður við könnun frá 2007.
• Þjónustukönnun á hjúkrunarheimili HSSA 2011 og samanburður við könnun frá 2007.
• Fundargerð viðræðufundar frá 5. júní 2011 um samstarf við Félag eldri borgara.
• Gögn frá vinnu- og hugmyndafundi 9. september 2011 um uppbyggingu og framtíð heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á svæðinu við Víkurbraut.
Þessi gögn eru lögð fram í 10 prentuðum eintökum auk rafræns eintaks eins og samningur okkar segir til um. Til greina kom að fylgja þessum gögnum eftir á fundi með stjórn HSSA en eftir vandlega íhugun, m.a. í ljósi ákvörðunar ykkar, teljum við að farsælla sé fyrir verkefnið að skila vinnu okkar með þessum hætti.
Stjórn, stjórnendum og öðru starfsfólki HSSA eru að lokum færðar bestu þakkir fyrir samstarfið.
Óskað er eftir því að bréf þetta verði fært til bókar í heild sinni í fundargerð stjórnar HSSA sem áformaður er þann 28. febrúar 2012.
Reykjavík 24. febrúar 2012,
_________________________
Gísli Sverrir Árnason
____________________ _____________________
Garðar Jónsson Tryggvi Árnason.“
Stjórn HSSA ítrekar bókun sína frá fundi 24. janúar sl.
Starfsmenn lögðu fram tíma- og verkáætlun í næstu skrefum stefnumótunar HSSA. Vinnulota stjórnar og starfsmanna í stefnumótun verður 9 og 10 mars n.k.
3. Rekstrarstaðan 31. jan. 2012
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna.
4. Starfsmannamál
Byrjað er að ráða inn í sumarafleysingar.
5. Önnur mál
a) Ásgerður og Guðrún Júlía greindu frá fundi sem þær sátu í Velferðarráðuneytinu ásamt Hjalta 1. febrúar sl., fundarefnið var þjónustusamningurinn.
Fundi slitið kl:


