Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 17
17. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 24. janúar 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að breyta heiti dagskrárliðs nr.3 úr drög að Fjárhagsáætlun HSSA 2012 í Fjárhagsáætlun HSSA 2012 og var það samþykkt.
1. Fundargerð 16 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 31. des. 2011
Reksturinn er í jafnvægi, réttu megin við núllið. Stjórnin lýsir yfir ánægju sinni með rekstrarstöðuna.
3. Fjárhagsáætlun HSSA 2012
Lögð fram fjárhagsáætlun 2012. Eftir yfirferð, samþykkir stjórn HSSA áætlunina með fyrirvara um niðurstöðu í samningum við velferðarráðuneytið um nýjan samning og þá hagræðingu sem hlýst af stofnun heimaþjónustudeildar. Kom fram að núgildandi samningur er skýr, bæði hvað varðar fjölda rýma og greiðslu fyrir nýtingu þeirra, en ráðuneytið hefur ekki enn gert upp við sveitarfélagið á grunni þess samnings.
4. Ársskýrsla HSSA 2011, fyrstu drög lögð fram til kynningar
Guðrún Júlía fór yfir fyrstu drög.
5. Búsetu/Heimaþjónustudeild, kynning á stöðu mála
Ester gerði grein fyrir þeirri vinnu sem unnin hefur verið.
6. Starfsmannamál
Elín Freyja Hauksdóttir læknir hefur ráðið sig til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands frá 1. september n.k.
7. Stefnumótun
Farið yfir tölvupóst frá Gísla Sverri Árnasyni til HÞV dags. 16. janúar 2012. Lagt er til að segja skilið við samstarf við R3 um gerð stefnumótunar fyrir HSSA. Enn á eftir að vinna talsvert í greiningum og samanburði við aðrar stofnanir, sem lendir þá á starfsmönnum í ráðhúsi og HSSA. Eftir þá vinnu verður auðveldara að móta framtíðar stefnu fyrir stofnunina.
Ljóst er að sveitarfélagið á þau gögn sem skilað hefur verið af R3 í þessari vinnu. Þau má nýta á ýmsan hátt. Þetta eru ekki skil sem við sáum fyrir okkur og auðvitað vonbrigði því lagt var af stað með mikinn metnað og greiddir hafa verið miklir fjármunir í tengslum við vinnuna.
Lagt er til að stjórn HSSA gefi sér og starfsmönnum tíma fram að sumarleyfum 2012 til að ljúka vinnunni og er það samþykkt. Stjórn HSSA óskar eftir að starfsmenn skili tíma og verkáætlun á næsta stjórnarfundi.
8. Önnur mál
a) Fyrsta skrefið í sameiningu sjúkraskráa Heilbrigðisstofnana Suðausturlands og Suðurlands, er að gera áhættumat á tölvukerfum stofnananna og verður það gert hjá HSSA á morgun. Velferðarráðuneytið stendur straum af kostnaði.
b) Lovísa Rósa tekur sæti Guðrúnar Ásu sem aðalmaður í Gjafa- og minningasjóði Skjólgarðs.
Fundi slitið kl: 18.00


