Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 15
15. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Guðrún Ása Jóhannsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir
1. Fundargerð 14 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna. Rekstrarstaðan 31. okt. 2011 er í jafnvægi.
3. Drög að launaáætlun/fjárhagsáætlun 2012
Fyrstu drög að FHÁ 2012 byggir á fyrstu drögum fjárlaga 2012 og þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið á árinu. Ljóst er að miðað við óbreyttar forsendur vantar mikið upp á til að hægt sé að halda óbreyttum rekstri og þjónustu árið 2012. Starfsmenn HSSA og sveitarfélagsins hafa átt marga fundi og samskipti við ráðuneyti, þingmenn og aðra til að koma að breytingu fyrir aðra umræðu fjárlaga sem verður í lok nóvember.
4. Starfsmannamál
Guðrún Júlía greindi frá stöðu læknamála næstu mánuði og Ásgerður og Ester fóru yfir starfsmannamál á hjúkrunar- og sjúkrasviði og heilsugæslu.
5. Kröfulýsingar
Framkvæmdaráð HSSA greindi frá þeirri vinnu sem unnin hefur verið í Kröfulýsingum sem eiga að vera fylgiskjöl með þjónustusamningi við Velferðarráðuneytið. Kröfulýsingarnar eru þrjár, um heilsugæslu, öldrunarþjónustu og sjúkraflutninga. Hlutverk lýsinganna er að vera kröfuskjal með lágmarkskröfum, sem velferðarráðuneytið gerir um rekstur þjónustunnar og um þá þjónustu sem skal veita.
6. Stefnumótun
Ásgeir greindi frá að drög að stefnumótun eru ekki tilbúin. Guðrún Júlía sagði frá fundi sem hún átti 4. nóvember sl. með ráðgjöfum R3, Gísla og Garðari. Forgangsmál að ljúka sem fyrst samanburðargreiningu á starfsemi HSSA við sambærilegar stofnanir.
7. Önnur mál
a) Næsti fundur verður 20. des. 2011
b) Ásgerður sagði frá heimsókn starfsmanna hjúkrunarheimilisins Klausturhólum
Fundi slitið kl: 17.20


