Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 14
14. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 25. október 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir, Hjalti Þór Vignisson og Ólöf Óladóttir.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir
1. Frumvarp til fjárlaga 2012 og staðan í þjónustusamningi
Hjalti fór yfir bréf sitt til Guðbjartar Hannessonar Velferðarráðherra dags. 24. október 2011. Í bréfinu kemur m.a. fram að búið er að skerða framlag til HSSA á árunum 2008 til 2010 um 20,8 m.kr. eða 4,6%. Í fyrstu drögum að fjárlögum ársins 2012 eru fjárheimildir til HSSA skornar niður um 35 m.kr. í viðbót eða 8,2% milli áranna 2011 og 2012, þ.e. 14,1% frá árinu 2008 til 2012. Lögð er áhersla á byggingu nýs hjúkrunarheimilis því hjúkrunarrýmin eru of lítil og fjölbýli regla fremur en undantekning, einnig að gengið verði frá þjónustusamningi sem allra fyrst. Hjalti vék af fundi kl: 16.30.
2. Fundargerð 13 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
3. Rekstrarstaðan
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna. Rekstrarstaðan 30. sept. 2011 er í jafnvægi.
4. Stefnumótun HSSA
Endanlegar niðurstöður í stefnumótun liggja ekki fyrir, en eins og áður hefur komið fram, er eitt af helstu áhersluatriðum úr stefnumótunarvinnunni að efla og samþætta heimaþjónustu. Bæjarstjóri fól starfsmönnum HSSA og félagsþjónustunnar að skoða og koma fram með hugmyndir. Ester greindi frá þeirri vinnu sem unnin hefur verið og lagði fram drög að skipulagi deildar. Markmið með samþættingu í heimaþjónustu er að tryggja gæði þjónustunnar og veita hana með hagkvæmari hætti. Víða er verið að vinna að samþættingu þessara þjónustuþátta og er það talið lykilatriði í umbótum innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar.
Stjórnin lýsir yfir ánægju sinni með þessa vinnu.
5. Starfsmannamál
Farið yfir stöðuna í læknamálum. Stjórn HSSA veltir því fyrir sér hvort leita þurfi út fyrir landsteinana að læknum. Einnig var farið yfir glærur sem stjórnendur HSSA hafa unnið um fjárlög 2012 og fleiri atriði á hjúkrunar- og sjúkrasviði.
6. Önnur mál
Fundi slitið kl: 17.40


