Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnr HSSA 13
13. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 20. september 2011 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ólöf Óladóttir.
Fundargerð ritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir
1. Fundargerð 12 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 31. ágúst 2011
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna. Rekstrarstaðan er í jafnvægi.
3. Stefnumótun HSSA
Með fundarboði fylgdu eftirfarandi gögn:
a) Fundargerð vinnufundar sem haldinn var í Ekru um stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum 9. september sl.
b) Framvinduskýrslur ráðgjafa dagsettar 25. júlí og 23. ágúst 2011.
c) Frumathugun vegna fyrirhugaðrar stækkunar á hjúkrunarheimilinu, sem unnin var árið 2002.
Guðrún Ingimundardóttir bendir á að fundartími frá kl:13-16 virka daga hentar almennum launþegum illa til að sitja fundi.
Á fundinum voru lögð fram drög að minnisblaði til Velferðarráðherra varðandi uppbyggingu og stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum í sveitarfélaginu Hornafirði.
Vinnufundur í stefnumótun verður laugardaginn 22. október, drög að dagskrá lögð fram til kynningar.
4. Starfsmannamál
Rætt um læknamál, auglýst var eftir læknum í síðasta Læknablaði og Morgunblaðinu 8. september.
5. Önnur mál
a) frá 19. maí til 9. september fengu leituðu 75 erlendir ferðamenn til heilsugæslunnar
b) stjórn hefur borist bréf frá íbúa sem naut þjónustu HSSA og þar kemur fram hve mikilvæg sú þjónusta er íbúum sveitarfélagsins
c) stungið er upp á að fundartími stjórnar HSSA verði framvegis 4 þriðjudag í mánuði og er það samþykkt
Fundi slitið kl: 17.15


