Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 9
9. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 29. mars 2011 kl. 12:00 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ester Þorvaldsdóttir, Ólöf Óladóttir og Gísli Sverrir Árnason, ráðgjafi..
Ásgeir bauð fólk velkomið og setti fund.
Dagskrá:
1. Samningur við R3
Gísli Sverrir fór yfir hugmynd að stefnumótun fyrir HSSA. Í kjölfarið ræddu fundarmenn ýmis atriði er hafa verður í huga í vinnunni, s.s. samráð við starfsmenn og almenning og hagsmuni dreifbýlis. Fundarmenn sammála um að heppilegast væri að fara í kynnisferð á aðra staði frekar snemma í ferlinu til að nýta mætti hana sem best.
Samningurinn lesinn og upp og undirritaður.
2. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl: 13.30


