Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 10
10. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fimmtudaginn 14. apríl 2011 kl. 20:00 í fundarsal Heilsugæslu.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir, Ólöf Óladóttir og Sigurjón Arnarson.
1. Fundargerðir 7. og 9. funda lagðar fram til kynningar
Í fundargerð 9. fundar vantar að skrá að Ásgerður og Guðmundur voru á fundinum. Einnig er skráður rangur fundartími. Ekki aðrar athugasemdir við fundargerðirnar.
2. Ársreikningur HSSA 2010
Sigurjón Arnarson endurskoðandi sat fundinn undir þessum lið og fór yfir ársreikning HSSA 2010 ásamt Guðrúnu Júlíu. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða og án athugasemda. Stjórn HSSA þakkar starfsmönnum vel unnin störf .
3. Rekstrarstaðan 31. mars 2011
Ekki tekið fyrir á þessum fundi.
4. Starfsmannamál og starfsemi sumarsins
Farið yfir starfsemi sumarsins og starfsmannamál. Ekki er gert ráð fyrir neinni breytingu á starfsemi nema að fæðingardeild verður lokuð meðan ljósmóðir er í sumarorlofi. Einnig kom fram að ekki er búið að fullráða í afleysingar.
5. Niðurstöður frá íbúafundi sem haldinn var í mars 2011
a) Leiðarljós og starfsmarkmið
b) kortaniðurstöður
Farið yfir niðurstöður íbúafundarins og eru þær gott innlegg í stefnumótunarvinnuna.
6. Stefnumótun HSSA
a) Stýrihóp verkefnisins skipar stjórn HSSA.
b) Auglýst verður eftir sjálfboðaliðum í rýnihópa.
c) Skoðunarferð verður farin í viku 23.
7. Önnur mál
a) Ásgerður og Guðrún Júlía sögðu frá fundi sem samráðsnefnd heilbrigðisumdæmis Suðurlands hélt 14. apríl á Hvolsvelli með rekstraraðilum hjúkrunarheimila í umdæminu. Þar kom meðal annars fram að hlutfall fjölbýla í hjúkrunarrýmum er miklu hærra hjá HSSA en nokkru öðru hjúkrunarheimili í heilbrigðisumdæmi Suðurlands, 7 hjúkrunarheimili af 12 eru eingöngu einbýli. Það heimili sem kemst næst HSSA í fjölda fjölbýla er Ás í Hveragerði með 11 einbýli og 10 fjölbýli. Á hjúkrunardeild HSSA eru 2 einbýli og 11 fjölbýli!!
b) Ester greindi frá fræðslu sem haldið verður á morgun í Nýheimum um sálræna skyndihjálp. Kynnt verður álfallahjálparáætlun Landlæknisembættisins.
Fundi slitið kl: 21.34


