Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 109
109. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 03. mars 2010 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir, Guðlaug Björgvinsdóttir og Jón Kristján Rögnvaldsson
1. Könnunin 50 plús, kynning á niðurstöðum
Jón Kristján fór yfir niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir sl. haust þegar könnuð var búsetu þörf og óskir 50 ára og eldri í sveitarfélaginu. Alls svöruðu 210 af 550 einstaklingum eða 38,2%. Kemur fram að fleiri hafa áhuga á að leigja í fjölbýlishúsi eða raðhúsi frekar en að kaupa íbúðirnar. Þegar spurt var hvaða þjónusta er mikilvægust var þjónustuþáttunum raðað frá mikilvægasta þjónustuþættinum til minnst mikilvægasta; Heimilishjálp, heimahjúkrun, öryggishnappur, heimsendur matur, akstursþjónusta, dagvist aldraðra og hvíldarinnlögn. Einnig kom fram að 11,6% telja fjárhagslega stöðu sína mjög eða frekar slæma. Jón Kristján vék af fundi kl: 16.45.
2. Fundargerð 108. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
3. Rekstrarstaðan 31. janúar 2010
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna.
4. Samningur við Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Farið var yfir samning HSSA við Hsu um barnalæknaþjónustu, rannsóknir, símaþjónustu læknavaktar og fræðsludaga. Stjórnin samþykkir samhljóða samninginn.
5. Önnur mál
a) Guðrún Júlía sagði frá skýrslu sem verið er að vinna hjá HSSA, fyrir Landlæknisembættið um innra eftirlit stofnana og hvaða breytingar eru fyrirhugaðar eða hafa verið gerðar á starfsemi HSSA vegna niðurskurðarkröfu fyrir árið 2010.
b) Björk spurði hvort hugað væri að meira samstarfi við HSu? Starfsmenn greindu frá að ýmislegt væri til skoðunar.
c) Spurt um rúmanýtingu á hjúkrunar- og dvalardeild.
Fundi slitið kl: 17.20


