Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 108
108. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 28. janúar 2010 kl. 16:30 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og frá félagi eldri borgara Hornafirði Gróa Ormsdóttir, Halla Bjarnadóttir, Örn Erikssen og Björn Ólafsson.
1. Samráðsfundur með stjórn félags eldri borgara Hornafirði
Formaður HÖR bauð fulltrúa félags eldri borgara velkomna. Björk spurði um bæklinginn sem verið er að vinna um þá þjónustu, sem boðið er upp á í sveitarfélaginu, einnig kom hún með þá tillögu að hafa opinn fund þar sem farið væri yfir þá þjónustu sem er í boði hjá sveitarfélaginu og HSSA og OLE II verkefnið kynnt. Guðrún Ingimundard. spurði um félagsstarf eldri borgara og hvað þau teldu að betur mætti fara. Kom fram að fleiri virka félaga vantar í félagið, skráðir félagar eru um 160 og af þeim eru u.þ.b. 40-60 virkir. Tómstundafulltrúi sveitarfélagsins mætir á stjórnarfundi og er stjórnin ánægð með það samstarf. Björk spurði hvort félagið, HSSA eða sveitarfélagið vinni markvisst að því að koma í veg fyrir félagslega einangrun eldri borgara. Ágerður benti á að á vegum Rauða Krossins er möguleiki á heimsóknarþjónustu til einstaklinga sem eru félagslega einangraðir Ester minnti á heilsueflandi heimsóknir til eldri borgara. Björk stakk upp á að mismunandi aldurshópar, ynnu saman að ákveðnum viðburðum til að brúa kynslóðabilið.
Fulltrúar félags eldri borgara viku af fundi kl: 17.05.
2. Fundargerð 107. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
3. Rekstrarstaðan 31. desember 2009
Guðrún Júlía kynnti rekstur ársins 2009. Allt stefnir í að reksturinn verði réttu megin við núllið.
4. Kynning á starfsemi HSSA 2009
Guðrún Júlía fór yfir ýmsar starfssemistölur HSSA frá árinu 2009.
5. Kynning á samstarfsverkefnum og drög að samningi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi
Guðrún Júlía fór yfir drög af samningi Hsu um barnalæknaþjónustu, rannsóknir, símaþjónustu læknavaktar og fræðsludaga. Stjórnin fagnar þessu samingsdrögum og hvetur starfsfólk HSSA til að vinna áfram að samstarfi við Hsu.
6. Aðbúnaður á hjúkrunardeild HSSA
Ásgerður sagði frá því að verið er að útbúa minningaherbergi og litla borðstofu á hjúkrunardeild.
7. Starfsmannamál
Farið yfir ýmis starfsmannamál. Einnig kom fram að byrjað er að skipuleggja sumarstarfið 2010.
8. Önnur mál
a) Guðrún Ingimundardóttir leggur fram bókun um að kannaðir verði kostir þess að koma upp skjólveggjum eða sambærilegu mannvirki við vesturenda dvalarheimilis HSSA, enda eru engar svalir við íbúðir heimilismanna. Ásgerður greindi frá að Gláma Kím arkitektastofa er búin að gera drög að teikningu og að óskað hefur verið eftir fleiri tillögum.
b) Björk benti á að á síðasta fundi var bókað að starfsmenn HSSA ættu að koma með tillögur til hagræðingar fyrir 1. febrúar. Málinu er frestað til næsta fundar.
c) Heimasíða HSSA er komin í loftið. Hssa.is
Fundi slitið kl: 18.00


