Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 44
44. fundur
Fundur haldinn í heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss miðvikudaginn 24. september 2003, kl.16:15.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir og Þorgils Baldursson. Einnig Jóhann Ellert Ólafsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Baldur Thorstenssen, Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ingibjörg Ingólfsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rekstrarstaða HSSA 31. ágúst 2003
Jóhann fór yfir 8 mánaða uppgjör stofnunarinnar. Samkvæmt uppgjörinu er halli á fyrstu 8 mánuðum ársins 14,7 milljónir. Eftir á að koma inn endurgreiðsla frá ríkinu vegna greiðslu læknisverka utan dagvinnutíma u.þ.b. 4,6 milljónir. Framkvæmdastjóra er falið að fara yfir fjárhagsáætlun stofnunarinnar og greina hvar frávik koma helst fram. Rætt var um hvort unnt er að draga úr þjónustu stofnunarinnar yfir sumarmánuðina, bæði til að draga ú kostnaði og eins reyndist erfitt að manna deildir í sumar. Halldóra ræddi um nauðsyn þess að fara í innri greiningu á starfsemi stofnunarinnar. Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir áhyggjum af stöðu stofnunarinnar og þeirri staðreynd að reksturinn er í vaxandi mæli fjármagnaður á yfirdrætti. Peningaleg staða stofnunarinnar er nú neikvæð um 33 milljónir. Baldur benti á mikinn kostnað vegna ráðstafana stofnunarinnar í tengslum við Humarhátíð og Fjórðungsmót hestamanna. Hann áætlar aukakostnað vegna hátíðanna u.þ.b. 1 milljón.
Ásta vék af fundi.
2. Félagsleg heimaþjónusta HSSA
Jóhann lagði fram drög að gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu. Heilbrigðis- og öldrunarráð mun taka erindið fyrir aftur á næsta fundi.
3. Tímabókunarkerfið Bakvörður og vaktakerfið TimeCare
Jóhann fór yfir tilboð til stofnunarinnar um kaup á nýju tímaskráningar- og vaktakerfi. Kostnaður við kerfin og innleiðingu þeirra er 2,6 milljónir auk u.þ.b. 50.000 kr rekstrarkostnaðar á mánuði. Að samkeyra þessi tvö kerfi er þróunarvinna á kostnað seljanda kerfanna. Sparnaður af innleiðingu kerfanna er m.a. talinn nást í minnkuðu stöðugildi starfsmanns sem nú sér um vaktaskema og vinnuskýrslugerð á stofnuninni. Starfsánægja aukist og fjarvera minnki þar sem starfsmenn geta haft áhrif á vinnutilhögun. Hör kallar eftir frekari sundurliðun á því hvernig hægt er að ná fram sparnaði til að mæta kostnaði við innleiðingu kerfanna. Málinu frestað þar til þær upplýsingar liggja fyrir.
4. Önnur mál
Heilbrigðis- og öldrunarráð tekur undir bókun á 23. fundi almannavarnarnefndar Hornafjarðar um brýna þörf á því að fengin verði önnur sjúkrabifreið í sýsluna.
Guðrún Júlía kynnti gögn um skipurit og stöðugildi innan stofnunarinnar.
Fram kom að Baldur hefur sagt stöðu sinni lausri. Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir miklum áhyggjum af erfiðleikum við ráðningu lækna til stofnunarinnar.
fundi slitið kl. 17:55


