Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 106
106. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 22. október 2009 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss
Mætt voru: Guðrún Ingimundardóttir, Eiríkur Sigurðsson, Aðalsteinn Ingólfsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir.
1. Fundargerð 105. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 30. september 2009
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna, er hún innan ramma fjárhagsáætlunar.
3. Drög að fjárhagsáætlun HSSA 2010
Guðrún Júlía fór yfir drög að fjárhagsáætlun 2010. Eiríkur gerði athugasemdir hvernig sameiginlegur kostnaður er færður og framkvæmdastjóra er falið að skoða það með fjármálastjóra sveitarfélagsins. Einnig kom fram að frá áramótum verða sjúkrarýmin færð sem sér deild.
4. Vinnuvernd og öryggisnefnd HSSA
Ásgerður sagði frá vinnuverndarstarfinu sem unnið er hjá HSSA.
5. Bólusetning, H1N1
Ester greindi frá að 150 skammtar af bóluefni gegn H1N1 veirunni, hafa komið til Hornafjarðar og verið er að bólusetja forgangshópa þ.e. heilbrigðisstarfsfólk, björgunarsveitir o.fl.
6. Önnur mál
Fundi slitið kl: 17.10


