Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 105
105. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 24. september 2009 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss
Mætt voru: Guðrún Ingimundardóttir, Eiríkur Sigurðsson og Elín Magnúsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir.
1. Fundargerð 104. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrarstaðan 31. ágúst 2009
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna og er hún innan ramma fjárhagsáætlunar. Heilbrigðis- og öldrunarráð lýsir yfir ánægju sinni hve vel stofnunin er rekin. Guðrún Júlía greindi frá að milli áranna 2009 og 2010, megi reikna með 6,7% flötum niðurskurði á framlagi ríkis til heilsugæslu og sjúkrasviðs.
3. Fjölskyldustefna Hornafjarðar drög
Farið yfir drög að fjölskyldustefnu Hornafjarðar og athugasemdir verða sendar til félagsmálastjóra.
4. Bifreiðamál HSSA
HSSA hefur verið með tvo bíla á rekstrarleigu hjá Heklu frá árinu 2004. Rekstrarleigusamningarnir eru útrunnir og ekki hægt að framlengja þá. Samþykkt að HSSA kaupi þessa tvo bíla.
5. Önnur mál
a) Ester greindi frá að blóðtökustóllinn sem Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs gaf heilsugæslunni er kominn í hús.
b) Guðrún Ingimundardóttir spurði hvernig staðið er að tannvernd og umhirðu annar tannheilsu við Heilbrigðisstofnunina, síðan tannlæknir hætti starfsemi í byggingunni. Ásgerður fór yfir málið.
Fundi slitið kl: 17.29


