Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis og öldrunarráðs 104
104. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar þriðjudaginn 21. júlí 2009 kl. 16:15 í fundarsal ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir.
1. Fundargerð 103. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Dvalarheimili HSSA
Framtíðarstarfsemi dvalarheimilis rædd, umræðan verður tekin upp í haust.
3. Fæðingardeild HSSA
Rætt um hvernig launalaust leyfi ljósmóður HSSA frá 20 sept. til 1. des. 2009 verði leyst. Stefnt er að starfsemi fæðingardeildar verði óbreytt.
4. Önnur mál
a) Auglýst var eftir læknum í lok júní, engar umsóknir hafa ennþá borist.
b) Starfsmannamál rædd.
c) Tryggingagjald atvinnurekenda hefur verið hækkað og þýðir það 2 millj. kr. hærri rekstarkostnað hjá HSSA árið 2009, sem ekki er gert ráð fyrir í rekstraráætlun.
Fundi slitið kl:
17:10


