Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 103
103. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 10. júní 2009 kl. 16:15 í fundarsal Heilsugæslu
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson, Björk Pálsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásta Halldóra Guðmundsdóttir.
1. Fundargerð 102. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Ársreikningar HSSA 2008
Ásta Halldóra kynnti og fór yfir ársreikning HSSA 2008. Engar athugasemdir og voru þeir samþykktir.
Formaður óskaði eftir breytingu á dagskrá, var það samþykkt og farið varið í lið 4 a). Ásta vék af fundi eftir þennan lið.
3. Rekstur HSSA í sumar
Guðrún Júlía fór yfir hvernig staðið yrði að skertri þjónustu á dvalarheimilinu í sumar. Nú eru 3 vistmenn á dvalarheimilinu. Formaður lýsti yfir ánægju sinni hvernig staðið hafi verið að því að hagræða starfsemi dvalarheimilis í sumar.
Guðrún Ingimundardóttir lagði fram eftirfarandi bókun: Guðrún Ingimundardóttir velti upp þeirri spurningu hvort ekki væri rétt að endurskoða rekstur dvalarheimilis HSSA í ljósi þess að ekki virðist vera grundvöllur fyrir heilsársþjónustu á dvalarheimilinu.
4. Önnur mál
a) Ásta Halldóra kynnti ársreikning Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 2008.
b) Staðan í læknamálum rædd og farið yfir hvernig staðið verði að auglýsingu eftir lækni.
c) Formaður greindi frá að upplýsingabæklingur um þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu sé verið að vinna á fullu og stefnt sé að því að gefa hann út í haust.
Fundi slitið kl:17.30


