Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 102
102. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 20. maí 2009 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Eiríkur Sigurðsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Sigurborg Helgadóttir og Hjalti Þ. Vignisson.
1. Fundargerð 101. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Staða á þjónustusamningi við HBR
Hjalti fór yfir stöðuna á þjónustusamningnum og greindi m.a. frá að samningsdrögin eru í yfirlestri í fjármálaráðuneytinu. Miklar umræður um heimahjúkrun og fleiri þætti samningsins. Hjalti vék af fundi kl: 16:30.
3. Rekstrarstaða 30. apríl. 2009
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 30. apríl 2009.
4. Undirbúningur fyrir fund með eldri borgurum í haust
Formaður stakk upp á að mynda undirbúningshóp og að í honum yrðu Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir og Björk Pálsdóttir. Samþykkt.
5. Kynning á viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldur inflúensu
Ester kynnti viðbúnað vegna heimsfaraldurs inflúensu, neyðarbúnað á staðnum, sjúkdómseinkenni og ferli sjúkdómsins.
6. Starfsemi sumarsins
Ásgerður, Ester og Guðrún greindu frá ýmsu er varðar starfsemi sumarsins.
7. Kynning á stöðu OLE II verkefnisins
Ásgerður fór yfir stöðu verkefnisins.
8. Önnur mál
a) Lögð fram ný drög að könnun á þörf fyrir uppbyggingu íbúða, fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins. Kom fram athugasemd á spurningu 10 þar sem ætti að vera hægt að raða frá 1 uppí 7 eftir mikilvægi. Að öðru leiti leist nefndarmönnum vel á þessi drög.
b) Ásgerður greindi frá gjöfum sem hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA hafa borist frá einstaklingum.
c) Heimasíða HSSA er langt komin og var kynnt fyrir nefndarmönnum. Nefndarmenn gleðjast yfir því að heimasíðan sé að verða að veruleika.
d) Ársreikningar HSSA 2008 verða líklega tilbúnir í næstu viku.
e) Björk spurði um bæklinginn sem átti að vinna um alla þjónustu sem er í boði fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl: 18.15


