Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 101
101. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 2. apríl 2009 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Þorbjörg Arnórsdóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Eiríkur Sigurðsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Ester Þorvaldsdóttir.
1. Fundargerð 100. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Staða á þjónustusamningi við HBR
Formaður HÖR og framkvæmdaráð HSSA fóru lauslega yfir nýjustu drög að þjónustusamningi við Heilbrigðisráðuneytið.
3. Rekstrarstaða 28. febr. 2009
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 28. febr.
4. Samráðsvettvangur við eldri borgara
Formaður lagði fram eftirfarandi tillögur að samráðsvettvangi við eldri borgara og voru þær samþykktar.
- HÖR boði stjórn eldri Hornfirðinga á tvo fundi á hverjum vetri þar sem farið verður yfir helstu mál er varðar eldri borgara.
- Einn fundur verði haldinn að hausti og annar að vori.
- Haldnir verði opnir samráðsfundir með eldri borgurum þegar tilefni þykir til, þá bæði í dreifbýli og þéttbýli.
- Fundargerðir HÖR verði sendar stjórn eldri Hornfirðinga til kynningar og HÖR fái til kynningar fundargerðir félags eldri Hornfirðinga til þess að tryggja upplýsingaflæði milli aðila.
5. Innsend erindi og bréf, ósk um umsögn á endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar 1998-2012 frá Hauki Inga Einarssyni framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar til kynningar.
Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að svæðinu kringum Heilbrigðisstofnun Suðausturlands verði haldið rúmu til að gera ráð fyrir frekari uppbyggingu heilbrigðis- og öldrunarmála í sveitarfélaginu.
6. Önnur mál
- Kynnt drög að könnun á þörf fyrir uppbyggingu íbúða, fyrir einstaklinga sem verða 60 ára og eldri á árunum 2010 til 2025. Miklar umræður og ákveðið að taka þetta upp á næsta fundi.
Fundi slitið kl: 17.45


