Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 99
99. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 21. janúar 2009 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson, Björk Pálsdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Ester Þorvaldsdóttir.
1. Fundargerð 98. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. FHÁ HSSA 2009
Björk spyr hvort niðurskurður til HSSA sé meiri en til annarra heilbrigðisstofnana. FHÁ 2009 er lögð fram til kynningar og stefnt verður að leggja hana fram á næsta fund HÖR til afgreiðslu.
3. Skipulagsbreytingar í heilbrigðisþjónustu
Þann 8. janúar sl. kynnti heilbrigðisráðherra skipulagsbreytingar í heilbrigðisþjónustu og meðal þeirra breytinga sem boðað er til, þá á að sameina heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Suðausturlands og Suðurlands í eina stofnum undir merkjum heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) eða Sveitarfélagið geri þjónustusamning við HSu um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í sveitarfélaginu Hornafirði. Hjalti er í viðræðum við Magnús forstjóra HSu um áframhaldandi þjónustusamning. Ásgerður, Ester og Guðrún Júlía sögðu frá vinnufundi sem haldinn var 14. janúar sl. þar hittust framkvæmdastjórnir heilbrigðisstofnananna og fjallað var um samstarfsmöguleika þessara stofnana. Miklar umræður voru um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar í heilbrigðisþjónustu.
Formaður lagði fram eftirfarandi bókun: Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur ríka áherslu á að þjónustusamningur sem sveitarfélagið hefur haft við ríkið um rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála verði endurnýjaður þrátt fyrir þá skipulagsbreytingu sem fyrirhugðuð er. Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur jafnframt áherslu á að þessi breyting verði til þess að efla heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Bókunin er samþykkt samhljóða.
4. Rekstrarstaða 31. desember 2008
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 31. des. og er reksturinn í lagi m.v. fjárhagsáætlun. HÖR lýsir yfir ánægju með rekstrarstöðuna.
5. Samráðsvettvangur við eldri borgara
Formaður lagði fram til kynningar drög að samráðsvettvangi HÖR og eldri borgara í Hornafirði. Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni með drögin. Þorbjörg vakti athygli á félagsstarfi fyrir eldri borgara í Öræfum, sem unnið er af sjálfboðaliðum.
6. Innsend erindi og bréf, ósk um umsögn á endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar 1998-2012 frá Hauki Inga Einarssyni framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar til kynningar.
Lagt fram til kynningar og tekið fyrir á næsta fundi.
7. Hækkun á gjaldskrá mötuneytis HSSA
Gert er ráð fyrir að gjaldskrá mötuneytis hækki m.v. neysluverðsvísitölu, en út af aðstæðum í samfélaginu ákveður HÖR að fresta þessari hækkun.
8. Önnur mál
- Tillaga um að fundir HÖR verði fjórða miðvikudag í hverjum mánuði. Framkvæmdastjóra falið að kanna málið.
- Björk spyr hvar er heimasíða HSSA og óskar eftir svari á næsta fundi.
- Björk spyr hver er staðan með útibú Lyfju hér á Hornafirði. Lyfja hefur fengið undanþágu á starfsleyfi framlengda um 6. mán. og auglýst hefur verið eftir lyfjafræðingi.
- Eiríkur spyr hver hjá HSSA taki ákvörðun um heimsóknir heimahjúkrunar til eldri borgara. Einnig spyr Eiríkur hver og hvernig tilkynnt er um þegar heimsóknum er hætt. Ester fór yfir þessa þætti.
- Ásgerður greindi frá bréfi sem framkvæmdaráð HSSA hefur sent til skólanefndar Hornafjarðar um sumarlokun leikskóla.
- Björk spyr um starfsmannamál.
Fundi slitið kl:18:15


