Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 100
100. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar fimmtudaginn 26. febrúar 2009 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson og Eiríkur Sigurðsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Ester Þorvaldsdóttir.
1. Fundargerð 99. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. FHÁ HSSA 2009
Fjárhagsáætlun fyrir HSSA kynnt. Stjórn HÖR lýsir yfir ánægju sinni með það mikla aðhald sem fram kemur í fjárhagsáætlun þessa árs, ljóst er að þar koma allir starfsmenn að verki og fjárhagsáætlunin samþykkt.
3. Rekstrarstaða 31. janúar 2009
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 31. jan. erum ekki að fá fulla greiðslu fyrir hjúkrunarrýmin og framlagi frá ríki til heilsugæslu er dreift ójafnt yfir árið.
4. Staðan á þjónustusamningi við HBR
Formaður fór yfir bréf dags. 17. febrúar 2009 til Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra frá Hjalta Vignissyni bæjarstjóra, þar kemur fram að óskað er eftir að gengið verði til samninga sem fyrst og sveitarfélagið fái greidda eina fasta upphæð árlega fyrir veitta þjónustu skv. samningi. Farið var yfir tillögur sveitarfélagins á fjölda hjúkrunar-, dvalar-, dagvistar- og sjúkrarýma og greiðslu til heilsugæslu og heimahjúkrunar.
5. Samráðsvettvangur við eldri borgara
Frestað til næsta fundar.
6. Innsend erindi og bréf, ósk um umsögn á endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar 1998-2012 frá Hauki Inga Einarssyni framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar til kynningar.
Frestað til næsta fundar.
7. Viðbragðsáætlun HSSA
Ester greindi frá að ritnefnd fyrir viðbragðsáætlun HSSA er tekin til starfa, í ritnefndinni eru Ester, Áslaug og Björn. Verkefni nefndarinnar er að búa til viðbragðsáætlun fyrir HSSA og nota til þess sniðmát frá Almannavörnum ríkisins. Ester lagði ríka áherslu á mikilvægi þess að þeir aðilar er koma að björgunarmálum í sveitarfélaginu vinni saman að viðbragðsáætlunum.
8. Önnur mál
a) Heimasíða HSSA er ennþá í vinnslu.
b) Eiríkur spurði um afritunartöku á sjúkraskrám. Farið var yfir hvernig afritunartöku á tölvugögnum er háttað hjá HSSA.
Fundi slitið kl: 17.30


