Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fudnargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 45
45. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs í fundarsal ráðhúss Hornafjarðar miðvikudaginn 17. desember kl:
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir
1. Ósk um styrk frá Ásgerði K. Gylfadóttur dags. 15. des. 2008 til að kaupa húsgögnum á dvalardeild að upphæð kr. 373.939 og 432.881 Samtals 806.820.-
Beiðni hafnað.
2. Bréf frá Matthildi Ásmundardóttir dags. 9. des. 2008 ósk um styrk til kaupa á tveim hjólastólum fyrir hjúkrunardeild og heilsugæslustöð að upphæð kr. 69.694 pr. stóll. Samtals kr. 139.388.-
Beiðni samþykkt.
3. Beiðni um styrk dags. 5. des. frá Þorbjörgu Helgadóttir um kaup á DVD og geisladiskum að upphæð kr. 20.274.-
Beiðni samþykkt.
4. Önnur mál.
Gjafa og minningarsjóður Skjólgarðs samþykkir umsókn frá Ásgerði Gylfadóttur hjúkrunarstjóra HSSA sem sótt var um á fundi númer 44 þann 19.nóvember síðastliðinn að hjóla kollum frátöldum.
Guðrún Ingimundardóttir tekur að sér að panta merkingarspjöld á gjafir frá gjafasjóðnum.
Fundi slitið kl:17.50


