Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 98
98. fundur
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Sigurðsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir, Sigurborg Helgadóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Hjalti Vignisson.
1. Fundargerð 97. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. FHÁ HSSA 2009
Hjalti fór yfir nýjustu drög að fjárlögum 2009 til Heilbrigðisstofnana, búið er að lækka fjárlögin milli fyrstu og annarrar umræðu hjá flestum stofnunum, en mismikið og lækkun fjárlaga til HSSA er meiri en til flestra annarra heilbrigðisstofnana. Hjalti vék af fundi kl:16.30.
3. Rekstrarstaða 30. nóv.
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 30. nóv. og er reksturinn í jafnvægi m.v. fjárhagsáætlun.
4. Framtíðarsýn í húsnæðismálum eldri borgara, Hornafirði
Eiríkur lagði fram eftirfarandi tillögu: HÖR samþykkir að beina til bæjarráðs Hornafjarðar að láta fara fram könnun á þörf á hentugu húsnæði, fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins, næstu 10 – 15 árin. Einnig fari fram könnun á þörf hjúkrunarrýma fyrir þetta sama tímabil. Könnun þessi fari fram á næsta ári og niðurstöður liggi fyrir ekki seinna en í lok ársins 2009.
Tillagan er samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og vísað til bæjarráðs.
5. Fasteignir HSSA
Guðrún Júlía greindi frá að flytja ætti umsjón með nokkrum fasteignum HSSA, til Fasteigna ríkissjóðs. Þær fasteignir sem um ræðir eru heilsugæslustöðin og starfsmannaíbúðir, alls 2.161 fm. Einnig hefur verið gerður formlegur leigusamningur milli HSSA og Fasteigna ríkissjóðs sem tekur gildi 1. janúar n.k. Guðrún Júlía leggur til að Sunnubraut 3 verði seld og annað hentugra húsnæði keypt í staðinn. Samþykkt að selja Sunnubraut 3 og því vísað til bæjarráðs.
6. Innsend erindi og bréf, Frumvarp til laga um sjúkraskrár www.althingi.is/altext/136/s/0205.htmlds
Engar athugasemdir komu fram.
- Starfsmannamál
Rætt um læknamál o.fl.
- Önnur mál
a) Björk minnir á samráðsfundinn sem til stendur að halda með félagi eldri Hornfirðinga.
Fundi slitið, kl. 17:05


