Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 97
97. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Eiríkur Sigurðsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Sigurborg Helgadóttir.
1. Fundargerð 96. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. Rekstrastaða 31. okt.
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna 31. okt. og er reksturinn í jafnvægi m.v. fjárhagsáætlun.
3. Drög að fjárhagsáætlun HSSA 2009
Guðrún Júlía fór yfir fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2009 og sagði að óvissa væri mikil varðandi stöðu næsta árs vegna stöðu þjóðmála og óvissa er með framlög ríkis.
4. Starfsmannamál
Ásgerður fór yfir nokkur atriði varðandi starfsmannamál.
5. Önnur mál
a) Björk spurði um samstarfsfund með eldri borgurum, upplýsingabækling, Lyfju og heimasíðu HSSA. Einnig nefnir hún að æskilegt væri að setja Sunnubrautina strax í sölu.
Kom fram hjá Ásgeiri að upplýsingabæklingurinn er í vinnslu og að búið er að framlengja samninginn um að Lyfja verði áfram opin hér á Höfn. Enn er óvíst hvenær heimasíðan verður tilbúin.
b) Ásgerður og Björk sögðu frá námsstefnu um heimaþjónustu sem þær sátu í síðustu viku, miklar umræður voru um heimaþjónustu almennt og tækifæri til að efla hana.
Fundi slitið, kl. 17:20


