Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 40
40. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs í fundarsal ráðhúss Hornafjarðar 28. maí 2008 kl. 18:15.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson og Björk Pálsdóttir.
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir
1. Ársreikningar 2007
Ásta lagði fram drög að ársreikningi 2007 þar kom fram að eignir sjóðsins eru rúmlega 24,1 m.kr. innborganir voru um 3,6 m.kr. þar af vaxtatekjur um 2,4 m.kr., rekstrarkostnaður um 265 þúsund og styrkir á árinu voru um 1,6 m.kr.
2. Bréf frá Þorbjörgu Helgadóttur dags. 7. maí 2008.
Beiðni um styrk til kaupa á Heimildaþáttum um sögu lands og þjóða að upphæð kr. 26.000.- Beiðni samþykkt.
3. Bréf frá Sjúkraþjálfurum dags. 26. febr. 2008
Beiðni um styrk til kaupa á þrekhjóli að upphæð kr. 337.157.-
Beiðni um kaup á Monark þrekhjól að upphæð kr. 246.510.-
Beiðni samþykkt.
4. Skipulagsskrá.
Rætt var um skipulagsskrá og úthlutunarreglu sjóðsins.
Fundi slitið kl: 18:45


