Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunaráðs 96
96. fundur
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Aðalsteinn Ingólfsson, Guðrún Ingimundardóttir, Eiríkur Sigurðsson og Björk Pálsdóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Sigurborg Helgadóttir.
1. Fundargerð 95. fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
2. OLE II verkefnið
Ester fór yfir stöðu verkefnisins.
3. Rekstrarstaða 30. september 2008
Guðrún Júlía fór yfir rekstrarstöðuna.
4. Breytingar á Skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
Formaður kynnti og fór yfir tillögu að breyttri Skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Tillagan var samþykkt, með þeirri breytingu að 3. grein verði þannig: Stofnfé sjóðsins er kr. 3.200.000 og má ekki skerða þá fjárhæð. Stofnfé skal árlega taka breytingum m.v. neysluverðsvísitölu og skal miðað við grunnvísitöluna 281,8 stig.
5. Staða Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs
Formaður kynnti stöðu sjóðsins.
6. Starfsmannamál
Ester og Guðrún Júlía fóru yfir nokkur atriði í starfsmannamálum.
7. Önnur mál
a) Lyfjastofnun ætlar að loka Hafnarapóteki 1. desember n.k. ef tekst ekki að fá lyfjafræðing til starfa fyrir þann tíma. Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur fram eftirfarandi bókun: ,,Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur áherslu á að útibú Lyfju verði starfrækt áfram. Starfsemi útibúsins hefur verið hnökralaus og engar málefnalegar ástæður eru fyrir því að endurskoða fyrirkomulag lyfsölu á staðnum. Sýnt hefur verið fram á örugga afgreiðslu lyfja og starfsemi útibúsins. Heilbrigðis- og öldrunarráð óskar eftir því að bæjarráð fylgi þessu máli eftir.”
b) Eiríkur lagði fram drög að tillögu um að gera könnun á þörf um þörf á íbúðahúsnæði fyrir fólk á aldrinum 60 ára og eldra, tillagan verður tekin fyrir á næsta fundi.
Fundi slitið, kl. 18:00


