Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fudnargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 94
94. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 20. ágúst 2008 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Eiríkur Sigurðsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Sigurborg Helgadóttir.
1. Fundargerð 93. fundar lögð fram til kynningar
2. OLE II
Guðrún Júlía greindi frá verkefninu OLE II sem er verkefni á vegum NPP, þátttakendur koma frá Noregi, Færeyjum, Svíþjóð, Finnlandi, Skotlandi, Írlandi og Íslandi. Tilgangur verkefnisins er að leita leiða við að auka lífsgæði eldri borgara.
3. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarheimila
Stjórn Heilbrigðis- og öldrunarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar mótmælir að í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarheimila skuli Hornafjörður ekki vera með í fyrirhugaðri uppbyggingu næstu ára.
Í fyrrnefndri yfirlýsingu er talað um að Félags- og tryggingamálaráðuneytið hafi unnið ítarlega þarfagreiningu í samráði við sveitarfélög. Þessu mótmæla forsvarsmenn sveitarfélagsins og kannast ekki við neitt samráð í þessum efnum.
Við upphaf samningaviðræðna haustið 2006, um framlengingu þjónustusamnings við Heilbrigðisráðuneytið, kom skýrt fram hversu mikilvægt er að af einsetningu hjúkrunarrýma verði sem allra fyrst. Einnig hafa forsvarsmenn sveitarfélagsins kynnt þetta mál fyrir þingmönnum kjördæmisins.
Stjórn heilbrigðis- og öldrunarráðs Hornafjarðar hvetur ríkisstjórnina til að endurskoða þessa ákvörðun og huga betur að aðbúnaði aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði.
4. Rekstrarstaða 31. júlí 2008
Guðrún Júlía fór yfir og lagði fram drög að endurskoðaðri fjárhagsáætlun HSSA 2008. Ljóst er að rekstrar- og launakostnaður mun hækka umtalsvert á þessu ári vegna verðlags- og kjaraþróunar. Guðrún Júlía lagði einnig fram gögn um fjárheimildir 2008 og samantekt úr ársreikningum fyrir heilsugæslu frá árinu 2002.
5. Viðhald húsnæðis HSSA
Neysluvatnslagnir verða endurnýjaðar í húsnæði heilsugæslunnar í haust, þakkantur á Sunnubraut 3 lagaður og á næsta ári verður farið í viðhald utanhúss á Víkurbraut 31, heilsugæslunni.
6. Starfsmannamál.
Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa bæði á heilsugæslu- og hjúkrunarsviði. Þrátt fyrir auglýsingaherferð í vor, þá hafa engar fyrirspurnir borist. T.d. vantar hjúkrunarfræðing í skólahjúkrun. Læknamálin verða með svipuðu formi í vetur og í fyrravetur.
7. Önnur mál.
Fundi slitið kl. 17.40


