Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 93
Fundur 93
Yfirlit
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 18. júní 2008 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Björk Pálsdóttir og Eiríkur Sigurðsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir og Sigurborg Helgadóttir.
Nýr formaður HÖR Ásgeir Gunnarsson setti fund og bauð sérstaklega velkominn Eirík Sigurðsson sem er nýr fulltrúi í HÖR og Guðrúnu Ingimundardóttur tekur við varaformaður af Ásgeiri.
- Fundargerð 92. fundar lögð fram til kynningar.
Athugasemdir að Sigurborgu Helgadóttur vantar í lista yfir þá sem mættu á fundinn og einnig Aðalstein Ingólfsson sem var mættur en ekki Elín Magnúsdóttir.
- Þjónustusamningur.
Formaður kynnti stöðu mála og lagði fram til kynningar bréf dags. 10. júní 2008 til Heilbrigðisráðuneytisins frá bæjarstjóra sem fjallar um: Þjónustusamningur um rekstur HSSA. Formaður greindi frá heimsókn bæjarstjóra í fjármála- og heilbrigðisráðuneyti og er bjartsýnn á að hægt verði að gera upp árið 2007 og til 1. sept. 2008 og í framhaldi af því verði hægt að skrifa undir nýjan samning. Björk spyr hvort notuð verði sömu þjónustusamningsdrög og lögð voru fram vorið 2007, formaður kveður svo vera. Elín Magnúsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir fagna því að sjá loks fyrir endann á þessum samningsmálum.
- Starfsmannamál.
Hjúkrunarfræðinga vantar á heilsugæslu og hjúkrunardeild næsta vetur. 25 júlí til 15 ágúst vantar starfsfólk til afleysinga á dvalarheimili og í félagslega heimaþjónustu. Læknir sem bæjarstjóri var í viðræðum við, um yfirlæknisstöðu HSSA er búinn að ákveða að koma ekki til starfa hjá HSSA.
- Tillögur að samstarfsvettvangi við eldri borgara.
Formaður lagði fram drög að samstarfsvettvangi við eldri Hornfirðinga. Björk ítrekar að það vanti bækling um þá þjónustu og verðskrá sem sveitarfélagið býður uppá. Elín benti á að þessar upplýsingar, ættu jafnvel heima í bæklingi sem verið er að vinna að í tengslum við fjölskyldustefnu sveitarfélagsins, Eiríkur tekur undir það. Ásgerður telur að betra sé að gera sér bækling fyrir eldri Hornfirðinga. Málinu er frestað til haustsins og hópurinn sem stofnaður á síðasta fundi, þ.e. formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri komi þá með tillögur .
- Umsögn á frumvarpi til laga um sjúkratryggingar, sent frá bæjarráði 9. júní sl. 423 fundur. www.althingi.is/altext/135/s/0955.html
Engar athugasemdir.
Guðrún Júlía fór yfir stöðuna. Halli HSSA skv. 5. mán. uppgjöri er 23,4 millj.kr., Á hjúkrunarsviði 13,5 millj.kr. og 9,9 millj.kr. á heilsugæslusviði. Framlög til hjúkrunarrýma eru 15,9 millj.kr. minni fyrstu 5. mán. ársins en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun HSSA 2008 og 5,5 millj.kr. vantar til heilsugæslu og sjúkrarýma m.v. fjárhagsáætlun, en dreifing á fjárframlögum er ójöfn yfir árið til heilsugæslu og sjúkrarýma. Samtals eru þetta 23,4 millj.kr. Tekið skal fram að útgjaldamesti tími ársins er framundan hjá HSSA eða sumarmánuðirnir.
Einnig bendir Guðrún Júlía á að heilsugæslusviðið var afgreitt með 14,9 millj.kr. halla í fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2008 og ársreikningar HSSA sýna 11,5 millj.kr. í halla á heilsugæslusviði 2007.
Eiríkur kom með athugasemdir með uppsetningu rekstrarreikningsins, formaður tók undir það. Björk ítrekar að framlög til heilsugæslu þurfi að vera hærri, þó að HSSA fengi fulla nýtingu fyrir hjúkrunarrýmin þá væri stofnunin rekin með halla. Björk óskar eftir samanburðartölum fyrir heilsugæsluna nokkur 5 ár aftur í tímann.
- Kosning í stjórn gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs.
Nýja stjórn kosin og var hún samþykkt einróma, hana skipa nú Ásgeir Gunnarsson formaður, Guðrún Ingimundardóttir varaformaður og Eiríkur Sigurðsson er varamaður. Björk er áfram aðalmaður og Aðalsteinn varamaður. Samþykkt einróma. Ásgerður veltir fyrir sér reglum sjóðsins og hvað megi sækja um í hann, einnig spyr hún hvað gert hafi verið við þá peninga sem fengust fyrir söluna á Hvannabraut 3. Guðrún Ingimundardóttir ítrekar að merkja eigi þær gjafir, sem gjafasjóðurinn gefur. Miklar umræður sköpuðust um málefni sjóðsins.
- Önnur mál.
a) Formaður leggur til að stjórn HÖR fari og heimsæki stofnanir HSSA í haust.
b) Guðrún Ingimundardóttir leggur til að farið verði í SVÓT greiningu á HSSA. Tekið er jákvætt í þessa hugmynd og stefnt að því að skoða betur í haust.
Fundi slitið kl.17:35


