Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 92
92. fundur
Fundur haldinn í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 28. maí 2008 kl. 16:15 í fundarsal Ráðhúss
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson, Elín Magnúsdóttir, Björk Pálsdóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Ásgerður Gylfadóttir.
Formaður setti fund og bauð sérstaklega velkomna Sigurborgu Helgadóttur sem er fulltrúi starfsmanna í HÖR.
1. Fundargerð 91. fundar lögð fram til kynningar.
Athugasemd kom fram um að númer síðustu fundargerðar var ekki rétt, á að vera 91 ekki 90. Formaður óskar eftir að liður 4, verði næst á dagskrá og var það samþykkt.
2. Samráðsfundur með eldri borgurum.
Samráðsfundir voru haldnir í byrjun maí í Ekru og Hofgarði með eldri borgurum sveitarfélagsins. Almennt kom fram ánægja með þjónustu og starfsemi HSSA. Björk leggur til að gefinn verði út bæklingur um þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu fyrir þennan aldurshóp og þar verði gjaldskráin einnig birt. Björk spyr um heilsueflandi heimsóknir til 70 ára og eldri og leggur áherslu á mikilvægi þeirra. Formaður lagði til að formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri móti tillögur um samstarfsvettvang við félag eldri Hornfirðinga. Stjórn félags eldri Hornfirðinga verði boðið á næsta HÖR fund til að ræða tillögurnar. Tillaga formanns er samþykkt.
3. Þjónustusamningur.
Formaður kynnti stöðu mála.
4. Ársreikningur 2007.
Ásta Halldóra kynnti ársreikningana og lagði fram til samþykktar. Aðalsteinn kom með athugasemdir við lið 12 bls. 9. HÖR samþykkti reikningana með framkomnum athugasemdum.
5. Önnur mál.
a) Árni spurðist fyrir um hvort kvörtunum til HSSA væri safnað saman með kerfisbundnum hætti í samræmi við ábendingar ríkisendurskoðunar frá sep. 2007. Framkvæmdastjóri sagði að ákv. ferli væri til staðar til að taka á móti kvörtunum og flokka.
b) Björk spyr um heimasíðu HSSA. Heimasíða HSSA er hluti af heimasíðu sveitarfélagsins. Ekki liggur fyrir hvenær hún verður tilbúin. HÖR hvetur til að vinnslu heimasíðunnar verði hraðað. Tveir mánuðir eru síðan vinnu starfsmanna HSSA lauk við heimasíðuna.
c) Björk spyr um rekstrarstöðu HSSA, ekki hefur verið lögð fram rekstrarstaða síðustu 2 mánuði. 5. mán. staða lögð fram á næsta fundi.
d) Starfsmannamál, fyrirspurn kom frá Ásgerði um ráðningu í stöðu yfirlæknis HSSA. Framkvæmdastjóri greindi frá því að bæjarstjóri er í viðræðum við lækni og ætti það að skýrast á næstu vikum.
Formaður þakkaði nefndarmönnum fyrir samstarfið en þetta er síðasti fundur hans sem formaður HÖR.
Fundi slitið kl. 17:25


